Bréf til þátttakenda:
Kynningarbréf
Dagskrá
Kynningarbréf
Kennaraháskóli Íslands
Endurmenntunarnámskeið 1996
Reykjavík, 28. júní 1996
Ágæti kennari,
Við viljum með þessu bréfi bjóða þig velkominn á endurmenntunarnámskeið
um tölvur, upplýsingatækni og skólastarf sem haldið verður 20 -23 ágúst.
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um notkun tölvubúnaðar við ýmiss konar
aðstæður í skólum. Þá verður fjallað um hlutverk kennarans í ljósi
breyttra aðstæðna og þekkingar nemenda. Rætt verður um stöðu
upplýsingatækninnar í skólum og hvernig megi nýta hana til framþróunar í
skólastarfi.
Unnið verður að áætlun um þróun upplýsingatækni í skólum þátttakenda og
hugað að því á hvern hátt sú áætlun tengist skólanámskrá og almennri
stefnumótun skóla. Á námskeiðinu verða kynntir þeir möguleikar sem
bjóðast í kennslu og miðlun með nýrri tækni.
Námskeiðið fer fram í fyrirlestrum, umræðufundum og verklegum tímum í
tölvuveri, einnig verða nýttir annars konar kennslumiðlar, svo sem
vefsíður og tölvupóstur. Með þessu bréfi fylgir dagskrá námskeiðsins.
Mikil áhersla verður lögð á umræður og sjálfstæða vinnu þátttakenda á
þessu námskeiði. Við viljum því hvetja þig til að kynna þér stöðu
upplýsingatækni í íslensku skólastarfi áður en námskeiðið hefst. Með
þessu bréfi fylgir bókin "Í krafti upplýsinga" sem
menntamálaráðuneytið gaf nýlega út. Einnig fylgir með listi yfir
greinar um upplýsingatækni og tölvur í skólastarfi sem hafa birst nýlega
í Íslenskum menntamálum. Eftir föngum munum við miðla til þín
upplýsingum og gögnum gegnum veraldarvefinn. Við munum útbúa sérstaka
vefsíðu fyrir þetta námskeið, slóð að þeirri síðu verður:
http://rvik.ismennt.is/~salvor/tusk.htm og verður hún komin upp fyrir
15. ágúst.
Við hlökkum til að starfa með þér og vonum að þetta námskeið verði
vettvangur fyrir og uppspretta að nýsköpun á þessu sviði í þínum
skóla og öðrum grunnskólum. Við vonum að það samstarf sem hefst á
námskeiðinu í ágúst haldi áfram á vetri komanda.
Með kærri kveðju,
Karl Jeppesen (kjepp@ismennt.is)
Salvör Gissurardóttir (salvor@ismennt.is)
Dagskrá námskeiðs
Tölvur, upplýsingatækni og skólastarf
20. ágúst Hið stafræna samfélag
Hvað er upplýsingatækni?
Veraldarvefurinn - öflun og framsetning upplýsinga
Tölvubúnaður við ýmiss konar aðstæður í skólum
Hlutverk kennarans í breyttu umhverfi
21. ágúst Staða upplýsingatækni í skólum
Margmiðlunarefni - kynning og skoðun
Skólanámskrár og upplýsingatæni
Sjálfstæð vinna: Vefsíðugerð, skoðun og mat á
kennsluforritum
22. ágúst Kennslufræðikenningar og upplýsingatækni
Gerð áætlunar um þróun upplýsingatækni í
skólum þátttakenda. (Þátttakendum skipt eftir
staðsetningu og stærð skóla)
Tæknin - hvað er að gerast? Kynning á nýjungum
23. ágúst Áætlunargerð frh.
Kynning hópa og samantekt á niðurstöðum áætlunargerðar
Kennsla hefst kl. 9:00 alla dagana og lýkur um kl. 16:00 en þó eiga
þátttakendur þess kost að vinna lengur í tölvustofu skólans til nánari
athugunar á því sem námskeiðið fjallar um.
Umsjónarmenn námskeiðsins áskilja sér rétt til fyrirvaralausra breytinga á
dagskrá námskeiðsins.