Drög að námskrá um upplýsingatækni
                                                                        
                                                                    	
Markmið
Að nemendur í lok grunnskóla verði færir um að nýta sér upplýsingatækni.
Allir fari í gegnum ákveðin forrit.  
Stefna skal að því að allir nemendur grunnskólans fái reynslu af tölvum
og hafi aðgang að nýjustu tækni hverju sinni.
 Nám geti farið fram bæði í tölvuveri og almennum kennslustofum. 
Flestir fagkennarar taki tölvuna í sína notkun.  
 Allar greinar grunnskólans geti nýtt sér tölvuna.
Eðlilegt er að nemendur kynnist tölvum í sínu vinnuumhverfi.

Framkvæmd.
1. Yngsta stig 6-9 ára
Almenn kynning
Þjálfunarforrit.
Þroskaleikir - litir, stafir, tölur.

2. Miðstig 10-12 ára
Mælingar, orðaforði, sögugerð, myndskreyting.
Kynnt létt forritun t.d. logo
Íslenska menntanetið verði nýtt i samskiptum við aðra skóla/nemendur .
Fingrasetning þjálfuð.

3. Unglingastig 13-16 ára
Nemendur læri að ná sér í upplýsingar og velja og hafna úr  internetinu.
Framtíðarsýn okkar er að hver nemandi hafi tölvu á sínu vinnuborði um
aldamót.