TUSK Hópur 2 Námskrárverkefni

Tillaga að skólanámskrá um tölvustyrkta kennslu.

	

			23. ágúst 1996
			Hópur 2.
			Björn, Guðrún og Þórir

Inngangur

Forsendur fyrir því að þessi áætlun verði framkvæmanleg er að nægilegt fjármagn sé fyrir hendi. Aðstaða til kennslunnar þarf að vera viðunandi í alla staði og tækjabúnaður við hæfi á hverjum tíma. Mikilvægt er að tölvustyrkt kennsla fái nægilegt rúm í stundaskrá hvers aldurshóps miðað við þessa áætlun.

Ekki er síður mikilvægt að gera ráð fyrir nægilegu fjármagni á hverju skólaári til hugbúnaðarkaupa. Þróun hugbúnaðar er mjög ör og til að vera í takt við tímann þurfa skólar talsvert fjármagn. Oft er vanmetinn sá tími og það fé sem þarf til umsjónar og viðhalds bæði vél- og hugbúnaðar og þarf að taka þann þátt með í kostnaðaráætlun. Gert er ráð fyrir að almennir kennara taki þátt í framkvæmd áætlunarinnar ásamt umsjónarmanni tölvukennslu. Þarf því að gera ráð fyrir námskeiðahaldi/kynningu fyrir almenna kennara.

Markmið:

· Að möguleikar upplýsingatækni verði notaðir til að bæta menntun nemenda.
· Að vekja áhuga nemenda á upplýsingatækni og kenna þeim að nálgast og nýta   
  sér upplýsingar.
· Að hjálpa nemendum að vinna úr margvíslegu og stöðugu áreiti upplýsinga,  
  læra að umgangast þær og færa sér þær í nyt.
· Að nota tölvuna sem tæki í daglegu lífi.
· Að tengja upplýsingatækni þeim námsgreinum sem verið er að fást við í  
  skólanum hverju sinni.
· Að kynna tölvuna sem verkfæri um leið og nemendur leysa verkefni við sitt  
  hæfi tengd námsefninu.
· Að þjálfa nemendur í að lesa upplýsingar og skipanir af skjá.
· Að skapa námsumhverfi sem hvetur til sjálfstæðrar þekkingarleitar og   sjálfsnáms.
· Að þjálfa nemendur í að nota rökhugsun við lausn verkefna.
· Að auka færni nemenda til að leysa þrautir og læra af mistökum.
· Að ýta undir uppgötvunarnám.
· Að hvetja til meiri virkni í námi.
· Að þjálfa nemendur í að vinna saman að lausn verkefna.


1-4. bekkur	

· Nemendur kynnast tölvunni og læra að umgangast hana í daglegu lífi.
· Nemendum kennd skil á helstu hlutum tölvunnar og íslenskum heitum þeirra  
  (skjár, lyklaborð, lyklar, mús, bendihnappur, bilstöng og fl.)
· Kenna nemendum að skrifa léttan texta í ritvinnslu og nota einfalt   teikniforrit.
· Nemendur kynnast og nota einföld kennsluforrit sem ætluð eru þessum   aldurshópi til
  aukinnar þjálfunar í móðurmáli, stærðfræði  og teikningu.
· Fingrasetning og notkun lyklaborðsins kynnt.


5-7.  Bekkur

· Nemendur kynnist og læri að nota kennsluforrit og geisladiska (gagnagrunna)  
  tengdum þeim námsgreinum sem kenndar eru í þessum árgöngum, s.s. í sögu,  
  landafræði, móðurmáli og stærðfræði.
· Fingrasetning kennd og þjálfuð með ritþjálfunarforritum.
· Kennt á auðvelda ritvinnslu og teikniforrit með verkefnavinnu.
· Tölvusamskipti innanlands og jafnvel erlendis.
· Kynning á Veraldarvef.


8-10. Bekkur.

· Nemendur nota kennsluforrit, geisladiska (gagnagrunna) og Veraldarvefinn  
  til gagnaöflunar og gagnamiðlunar tengdum þeim námsgreinum sem kenndar eru  
  í þessum árgöngum.
· Kennt á gagnagrunn og nemendur setji upp einfaldar skrár s.s. bekkjarskrá.
· Nemendum verði kennd tölvusamskipti innan og utan skólans, innanlands og 
  erlendis.
· Nemendur læri grundvallarhugtök og notkunarmöguleika töflureiknis tengt 
  þeim námsgreinum sem verið er að fást við hverju sinni.
· Nemendur noti ritvinnslu skólans við verkefnavinnu.