TUSK Námskrárverkefni Hópur 5

Námsskrárverkefni Hópur 5


Tölvur, upplýsingatækni og skólastarf  (námskrárgerð, hópur 5)




Hvaða aðstæður viljum við hafa ?

- tölvuver
- tölva í hverri stofu
- nemendur geti nálgast tölvur þegar hentar
- tölvur þurfa að vera tæknilega samhæfðar
- kennarar hafi aðgang af tölvum
- kennarar hafi áhuga og séu leiðandi og tilbúnir að kynna sér nýjungar og miðli þeim
- skólastjórn sjái um eðlilega endurnýjun á tækjum og hugbúnaði
- nemendur og kennarar hafi aðgang að Veraldarvefnum

Hvað skal kennt og hvenær ?

Tölvan notuð á öllum aldursstigum sem eðlilegur þáttur af öllum námsgreinum. Nemendur nái að tileinka sér sjálfstæði í upplýsingaleit,

Fyrst séu forrit kynnt til sögunnar sem eru einföld í notkun á allan hátt og svörun komi fram nær samstundis á aðgengilegu formi. Leggja verður áherslu á að allir taki þátt.

Eftir því sem fram líður verði nemendur að takast á við flóknari hugbúnað sem reynir á fleiri þekkingar - og leikniþætti.

Í eldri bekkjum verði lögð frekari áhersla á eiginlega tölvukennslu þar sem einnig er tekist á við tæknilegu hliðina s.s. vélbúnað og jaðartæki. Veraldarvefurinn verði kynntur fyrir nemendum og þeim kennt hvernig þeir geti nýtt sér hann til upplýsingaöflunar.

Mikilvægt er að nemendur geri sér fyrir að tölvan er tæki til að einfalda okkur tilveruna, þ.e. tölvan er fyrir lífið en lífið ekki fyrir tölvuna !