Upphaf þéttbýlis

Meitillinn

Útgerðin

Höfnin

Verslun

Samgöngur

Skólamál

Húsbyggingar

Um vefinn

 
 

Á árunum 1942-1950 var Suðurvarargarður lengdur um u.þ.b. 100 metra og var 5 metra dýpi við enda garðsins. Breiddin var 10 metrar.

Garðurinn var enn lengdur 1952-1953 um ca. 33 metra og breikkaði nú úr 10 metrum í 12,5 metra. Enn var bætt við einu keri 1955-1956 og var þá lengd garðsins orðin um 208 metrar og dýpi við garðsenda um 9 metrar.

Norðurvararbryggjan var einnig lengd og breikkuð á þessum árum. Auðvelt er að átta sig á aðstæðum í höfninni á þessu tímabili á breikkun Suðurvararbryggju. Þessi höfn bauð aðeins upp á mjög takmarkað öryggi fyrir báta og lágu þeir áfram við legufæri sem þess áttu kost. Um lestun og losun hafskipa var ekki að ræða nema í skaplegu veðri.

Kostnaður við hafnargerð:
1940-1950 var kr. 3,487,000.
1951-1960 var kr. 10,517,000.
Alls kr. 14,004,000.

©Sigríður Guðnadóttir 17.05.03

Bréf frá Þormóði Jónssyni Landnemar í Þorlákshöfn Til baka til skilasíðu.

Til baka til heimasíðu.