Upphaf þéttbýlis

Útgerðin

Höfnin

Verslun

Samgöngur

Skólamál

Húsbyggingar

Um vefinn

 
 

Viðskiptasvæði verslunarinnar í Þorlákshöfn var ekki stórt né íbúar þess margir í fyrstu. Selvogsbúar sóttu verslun til Þorlákshafnar og einstaka sinnum slæddist fólk úr Ölfusinu inn í búðina. Verslunin þjónaði fyrst og fremst heimafólkinu og vertíðarfólki. Verslunarbyggingin var ekki sérlega glæsileg í fyrstu, tveir sambyggðir timburskúrar, annar þeirra taldist búð og hinn birgðaskemma. Á vetrum kváðu oft við háir smellir þegar tappar sprungu úr gosdrykkjaflöskum í birgðaskemmunni.

1956 var tekið í notkun nýbyggt mjög myndarlegt verslunarhús. Sambyggt því var íbúð fyrir verslunarstjórann. Í tímaritinu Hlyni segir svo um verslunina: „Kaupfélag Árnesinga opnaði nýlega myndarlega verslun í nýju verslunarhúsi í Þorlákshöfn. Verslunarhúsið er 130 fermetrar að stærð og verslunin er rúmgóð og vistleg.


Verslunin skiptist í eftirtaldar deildir: vefnaðarvöru-, búsáhalda-, glervöru-, skó-, matvöru- og verkfæradeild.“

©Sigríður Guðnadóttir 12.05.03

Bréf frá Þormóði Jónssyni Landnemar í Þorlákshöfn Til baka til skilasíðu.

Til baka til heimasíðu.