2005

 


 

 

 

 

 

11. - 13. febrúar

Skálholtskirkja: Upptaka á verkum eftir Sir John Tavener.


 

8. - 9. apríl

Hveragerðiskirkja: Upptaka á lögum eftir Ölfusinginn og alþýðutónskáldið Guðmund Gottskálksson.

Upptökustjórinn Ólafur Elíasson við störf.


Kammerkór Suðurlands hefur verið að æfa og taka upp á hljómdisk verk eftir alþýðutónskáldið og Ölfusinginn Guðmund Gottskálksson. Guðmundur hefur samið mörg falleg einsöngs- og kórlög í gegnum tíðina. Kórfélagar og einsöngvarar úr kórnum syngja lögin í útsetningu Carl Billie og kórfélagann Örlyg Benediktsson sem er kennari við Tónlistarskóla Árnesinga. Alls verða tekin upp 18 lög og hefur kórinn fengið þekkta hljóðfæraleikara til að sjá um undirleikinn.


8. október

Tónleikar í Listasafni Íslands kl. 17.30.
Portrettónleikar
Tónleikar með verkum eftir Karólínu Eiríksdóttur

Flutt voru einleiks- og kammerverk frá tímabilinu 1992-2002.

Kammerkórinn flutti á tónleikunum undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar:
Að iðka gott til æru (2001) fyrir mezzósópran, óbó, víólu, selló, sembal og kór

Flytjendur ásamt kórnum:
Ásgerður Júníusdóttir, mezzósópran
Matthías Birgir Nardeau, óbóleikari
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóluleikari
Hrafnkell Orri Egilsson, sellóleikari
Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari


30. október kl. 16:00 og 20:00

Tónleikar í Hveragerðiskirkju
með verkum eftir Guðmund Gottskálksson

Tónar við hafið
Tónleikar í Versölum í Þorlákshöfn kl. 20.00. Verk flutt eftir Guðmund Gottskálksson og önnur sunnlensk alþýðutónskáld:
Ingunni Bjarnardóttur
Ingibjörgu Bergþórsdóttur
Pálmar Þ. Eyjólfsson
Loft S. Loftsson


31. des.

Á gamlársdag kom KS fram í Sjónvarpinu, í þættinum Kveðja frá Ríkisútvarpinu, og söng lagið Blítt er undir björkunum

 

sigga@toppnet.is

Þessi síða var síðast uppfærð 10.03.11