Blað
sem hópurinn skráir á sameiginlegar niðurstöður
(blaðið gæti t.d. litið út eins og sést
hér síðar).
Leiklýsing:
Í
upphafi skráir hver og einn nemandi það sem hann
þekkir af þessum ávöxtum og grænmeti
(ef nemendur eru mjög ungir er e.t.v. betra að hafa blað
þar sem búið er að skrá niður heitin
á ávöxtunum og nemendur krossa við heiti þess
sem þeir þekkja). Þegar hver og einn hefur reynt
eftir bestu getu er skipt í hópa (þrír
til fjórir saman). Hóparnir fá nokkrar mínútur
til að koma sér saman um endanlega niðurstöðu.
Hóparnir eiga svo að flokka í tvennt, í ávexti
og ber annars vegar og grænmeti hins vegar. Einnig eiga þeir
að nefna a.m.k. tvö næringarefni sem er að finna
í hvorum flokki. Hóparnir skila niðurstöðum
til kennara sem fer yfir og finnur sigurvegara meðan nemendur
útbúa eigið salat til að borða. Stigafjöldinn
í pottinum fer eftir því hversu margar tegundir
eru notaðar. Hópurinn fær eitt stig fyrir hvert rétt
svar. Fimm stig eru gefin fyrir að geta flokkað rétt
í tvennt (ávextir og ber, grænmeti), eitt stig
er dregið frá fyrir hvert atriði sem er vitlaust flokkað.
Tvö stig eru gefin fyrir að geta nefnt næringarefnin
tvö.
Tilvalið
er að leyfa hópunum að velja í sameiningu þrjár
til fjórar tegundir úr því sem í
boði er á borðinu og búa til eigið salat
úr því sem valið hefur verið. Í
lokin á svo að borða þetta og greina frá
niðurstöðum, spjalla um hollustuna og hvað bragðast
best.
Útfærsla:
Hægt
er að nota myndir í stað ávaxtanna og grænmetisins.
Ef það er gert er auðvitað ekki hægt að
leyfa nemendum að smakka á eftir. Allt fer þetta
auðvitað eftir aðstæðum, t.d. hversu mikið
er til í kæliskápnum. Stigatalningin er líka
matsatriði en það myndi eflaust skapa áhuga ef
einhver verðlaun væru í boði.
Ef verið
er að fjalla um ávexti og grænmeti er einnig skemmtilegt
að gera það á annan hátt en nú
var sagt og er sú útfærsla heppileg fyrir eldri
bekki. Markmiðið með leiknum breytist auðvitað
líka. Leikurinn gengur þá út á það
að hver og einn þátttakandi velur sér nafn
á einhverjum ávexti eða grænmeti. Allir sitja
í hring og læra þau nöfn sem hinir völdu
sér. Ég hef valið að vera banani og byrja leikinn
með því að segja: "Banani, sítróna."
Um leið klappa allir saman höndum. Sítrónan
verður þá að taka við mínum boðum
og halda áfram, en þá verður hún að
segja sitt nafn fyrst og bæta síðan öðru
við, t.d. gulrót. Þá tekur gulrótin
við og þannig koll af kolli. Ef einhver mismælir sig,
segir vitlaust orð eða fer að hlæja svo sést
í tennurnar er viðkomandi úr leik. Ekki má
heldur halda fyrir munninn. Sá vinnur sem er einn eftir..
Dæmi
um blað sem hópurinn gæti fyllt út saman:
Nöfn:
____________________________________________
Hvaða
ávexti og ber þekktuð þið?
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
Hvaða grænmeti þekktuð þið?
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
Nefnið a.m.k. tvö næringarefni sem er
að finna í grænmeti?
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
Nefnið a.m.k. tvö næringarefni í ávöxtum
og berjum?
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
____________________________________________
Þennan
leik má útfæra með myndum af fuglum og plöntum
í aðalhlutverki.
Sjá
heimildaskrá.