Dýraleikur
Markmið: Fræða um dýrin, tilbreyting
og skemmtun.
Aldur: 7+.
Gögn: Púði, útvarp eða
annað tæki til að leika tónlist, miðar með
spurningum um dýrin.
Leiklýsing:
Kennari
(eða nemendur, t.d. í hópvinnu) semur (semja) spurningar
um dýr og lætur þær í poka. Dæmi:
Svín. Hvað heita kvendýrið, karldýrið
og afkvæmið? Einnig getur staðið á miðanum
að viðkomandi eigi að leika eitthvert atferli dýrsins
eða hljóð.
Nemendur
sitja í hring á gólfinu og láta púða
(eða bolta) ganga á milli sín. Kennarinn leikur
tónlist í nokkrar sekúndur. Þegar hann
stöðvar tónlistina er einn nemandi væntanlega
með púðann. Sá nemandi á þá
að draga einn miða upp úr pokanum og svara spurningunni
sem á honum stendur.
Útfærsla:
Hægt
er að skipta bekknum í t.d. tvö lið. Þá
sitja nemendur í tveimur beinum röðum hvor á
móti annarri. Púðinn gengur á milli liðanna.
Það lið sem er með púðann þegar
tónlistin er stöðvuð dregur þá miða.
Hafa má þær reglur að á miðanum
standi einungis nafn á einu dýri. Liðið á
þá að leika það dýr og það
umhverfi sem það lifir í. Hitt liðið á
að giska á hvaða dýr er átt við.
Liðið sem gat upp á réttu dýri fær
stig eða missir stig ef það nefnir ekki rétt
dýr. Stigin eru skráð og það lið vinnur
sem hefur fleiri stig.
Einnig
er hægt að leyfa liðunum sjálfum að velja
sér dýr og leika það fyrir hitt liðið.
Úr
leikjabankanum