Forsíða

Markmid

Landgræðslan

Aðgerðir

Árangur

 

 

 

Landgræðsluflug

TF-NPK Páll Sveinsson Árið 1958 var byrjað að dreifa fræi og áburði úr flugvél í Þorlákshöfn. Í fyrstu var notuð lítil flugvél til dreifingar og hörð leira notuð sem lendingarstaður en hún var í fjöruborði við Ölfusá vestan Hamarenda, sunnan Hrauns í Ölflusi. Þetta gaf svo góða raun að hafist var handa við byggingu flugbrautar við Hafnarnes 1968 sem notuð var í nokkur ár þar til að farið var að nota áburðarflugvélina Páll Sveinsson. Með til komu áburðarvélarinnar margfaldaðist afkastagetan við styrkingu gróðurs innan landgræðslugirðingarinnar.

 

 

Sjá heimildaskrá.
Mynd: Guðjón Magnússon.

Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is