Fuglaleikur
Markmið:
Upprifjun námsefnis, tilbreyting, rökhugsun.
Aldur: Allur aldur.
Gögn: Spurningar (sjá lýsingu).
Leiklýsing:
Þetta
er einfaldur leikur sem hægt er að nota á marga vegu.
Hann getur bæði lífgað upp á kennslustund
og svo geta allir verið með.
Dæmi
um spurningar
Hvaða
dýr á ekki heima í þessum hópi?
Gíraffi
Hvalur
Ísbjörn
Þorskur
Köttur
Svar: Þorskur, öll hin dýrin eru spendýr.
Hvaða
persóna á ekki heima í þessum hópi?
Mikki mús
Walt Disney
Superman
Tommi og Jenni
Högni hrekkvísi
Svar: Walt Disney, hann er sá eini sem var til í raunveruleikanum.
Eins
og sjá má er hægt að búa til spurningar
sem falla að því efni sem nemendur eru að
fást við þá stundina. Nemendur geta
einnig sjálfir búið til spurningar af þessu
tagi.
Úr
leikjabankanum