Forsíða

Til kennara

Kennsluverkefni:
Að leita blóma I
Að leita blóma II
Fuglaskoðun I
Fuglaskoðun II
Vefrallý
Vefleiðangur
Krossgáta
Uppskriftir
Leikir

 

 

Fuglaskoðun I

Markmið: Að nemendur læri að þekkja fuglategundir í heimabyggð sinni og helstu einkenni þeirra

Aldur: Miðstig

Verklýsing
  • Þankahríð. - Hvað fugla hafið þið séð í ykkar heimabyggð? Svörin skrifðuð niður jafnóðum.
  • Nemendur fara með kennaranum sínum á náttúrugripasafn og skoða fugla. Skrifa síðan um ferðina t.d. hvað vakti mest áhuga þeirra.
  • Hver nemandi velur sér fugl til að skrifa um. Til að afla sér upplýsingar um fuglinn, sem hann valdi, skoðar hann fuglabækur og/eða notar Netið t.d. fauna.is, Fuglalíf í Þorlákshöfn, Fuglar á Íslandi og fleiri síður sem hægt er að finna á leit.is með því að slá upp fuglaverkefni.
  • Það sem þarf að koma fram er:
    a) lýsing á fuglinum b) attbálkur/tegund c) lifnaðarhættir.
    Lykilorð
stærð - litur - fætur - goggur - mismunur á kynjum - vaðfugl - spörfugl - ránfugl - sjófugl - búsvæði/staðfugl - nytjar - dýravernd) útrýmingarhætta.
  • Nemendur skrifa ljóð um fugla.
  • Nemendur syngja lög sem innihalda texta um fugla.

    Afrakstur

    Nemendur hreinskrifa alla textana upp í tölvu. Búa síðan til heimasíðu um fuglinn sem þeir völdu sér. Hún á að vera fjórar síður og innihalda:

    a) forsíðu
    b) ferð á safn
    c) lýsingu á fuglinum
    4) frumsamið ljóð e.t.v. önnur úr bókum eða af Neti sem fjallar um fuglinn

    Nemendur setja síðan myndir inn sem þeir hafa fundið á Neti eða hafa tekið sjálfir. Brýna þarf fyrir nemendum að geta heimilda.

Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is