Fuglaveiðimennirnir
Markmið:
Efla útsjónarsemi og snerpu, skerpa hlustun og athygli.
Aldur:
6-11 ára.
Gögn:
Stólar.
Leiklýsing:
Tvö
gagnstæð horn í stofunni eru merkt, annað til
að vera hreiður og hitt sem búr veiðimannsins.
Einn leikmaður er valinn til að vera móðurfugl.
Hann gætir hreiðursins og segir til um hvort fuglarnir hafa
komist í hreiðrið áður en veiðimennirnir
ná þeim á meðan á leik stendur. Tveir
leikmenn eru valdir til að vera veiðimenn og standa þeir
nálægt miðja vegu milli hreiðurs og búrs.
Aðrir leikmenn sitja á stólum sínum. Allir
leikmenn, aðrir en veiðimenn, fá fuglanöfn og
nokkrir bera sömu nöfnin. Það mætti t.d.
nefna hópa eða sætaröð sama nafni og síðan
skiptu þau um stað, svo að allar lóur eða
allir þrestir flygju ekki upp að sama svæði. Leikurinn
er fólginn í því að stjórnandinn
kallar upp fuglsnafn. Þeir sem heita því nafni
standa upp og reyna að finna sér leið til að komast
í hreiðrið. Veiðimennirnir reyna að ná
þeim og ef það tekst eru þeir settir í
búrið. Fuglarnir eru öruggir ef þeir komast
í hreiðrið. Þeir sem þangað komast
hverju sinni fara aftur í sætin, halda nöfnum sínum
og leikurinn er endurtekinn. Þeir fuglar, sem veiðimennirnir
klófesta, verða í búrinu þar til leik
er lokið. Leik er lokið þegar veiðimenn hafa sett
alla fugla í búrið.
Úr
leikjabankanum