Landgræðslugirðingin

Til
að hefta sandfokið nálægt Þorlákshöfn
var landið friðað fyrir búfjárbeit 1935
og girt af. Girðingin er 21,8 km löng og telst þetta
með stærri landgræðslusvæðum um
7.550 ha.
Svæðið nær frá Ölfusá og
að Nesvita í Selvogi, en sjórinn afmarkar svæðið
að sunnan allt austur að Hamarendum sunnan við Hraun
í Ölfusi og neðan við Vindheima, Breiðabólsstað,
Litlaland, Hlíðarenda yfir Selvogsheiði og allt
til sjávar austanvert við Nes í Selvogi.
Sandgræðslan keypti lönd frá Nesi í
Selvogi, Hlíðarenda, Litlalandi, Breiðabólstað
og Vindheimum í Ölfushreppi. Seinna var eigendum Hrauns
Í Ölfusi afhent það land er þeir áttu
innan girðingarinnar.
Landgræðslan á núna allt land innan girðingar
nema Þorlákshafnarland.
Eftir
að girðingin var komin var reynt að vinna að sandgræðslu
eftir því sem fjármagn og geta leyfði
en fyrstu 30 árin var lítill sem enginn árangur.
Sjá
heimildaskrá.
Loftmyndir:
Mats Wibe Lund (birt með leyfi Sveitarfélagsins Ölfuss).
Mynd: Sigurður Jónsson