Golfvöllur
Þar
sem áður var auðn og sandur er nú kominn grösugur
átján holu golfvöllur.
Byrjað var að mæla fyrir brautum 6. maí 1994,
en undir þær voru teknir 4 ha land. Sandhólarnir
voru sléttaðir út og formaðir í brautir
og sáð í þær túnvingli og vallarsveifgrasi.
Árið eftir var haldið áfram að útbúa
brautir, teigar voru unnir og þökulagðir og nutu menn
leiðsagnar Hannesar Þorsteinssonar sem tók að
sér að hanna völlinn.

Hér hefur landgræðslan svo sannarlega borið árangur.
Þarna hefur orðið til eitt skemmtilegast og sérkennilegasta
útivistarsvæði við suðurströndina. Sendin
og falleg strönd, merkilegur melgresissjóvarnargarður,
fallegar tjarnir, grösugir bakkar, runnagróður og
fagur fjallahringur.

Fuglalífið hefur breyst verulega með tilkomu vallarins
sem má rekja til aukins gróðurs og skordýralífs.
Hér eru skráðir fuglar
sem heimsækja Þorlákshafnargolfvöllinn.
Sjá
heimildaskrá.
Myndir: Guðjón Magnússon, Sigurður Jónsson
og Sigríður Guðnadóttir.