| 
Heiðlóarkvæði
Snemma
lóan litla í
lofti bláu „dírrindí“
undir sólu syngur:
„ lofið gæsku gjafarans –
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
Ég
á bú í berjamó,
börnin smá í kyrrð og ró
heima í hreiðri bíða.
Mata ég þau af móðurtryggð,
maðkinn tíni þrátt um byggð
eða flugu fríða.“
Lóan
heim úr lofti flaug
- ljómaði sól um himinbaug,
blómi grær á grundu, -
til að annast unga smá.
- Alla étið hafði þá
hrafn fyrir hálfri stundu.
Jónas
Hallgrímsson
Heiðlóarkvæði
Sungið af Signýju Sæmundsdóttur
Lag: Atli Heimir Sveinsson

|