Kría

Krían
í móanum hefur nú hátt,
Hún er að sýna vald sitt og mátt.
Enginn má styggja ungana smá
óboðna gesti þá rekur hún frá.
Þetta
er landið sem leigði ég hér.
langi þig hingað þá mætirðu mér.
Ég kann að verja mitt vígi og ból
þó vanti mig bæði byssur og tól.
Þetta
söng krían og sagði hún mér
að sælt væri að lifa í landinu hér.
Við skulum búa hér saman í sátt
og syngja og bardúsa hver á sinn hátt.