Forsíða

Til kennara

Kennsluverkefni:
Að leita blóma I
Að leita blóma II
Fuglaskoðun I
Fuglaskoðun II
Vefrallý
Vefleiðangur
Krossgáta
Uppskriftir
Leikir

 

 

Að leita blóma I

Markmið: Að nemendur þjálfi sig í að greina og festa í minni plöntur sem notaðar eru t.d. við landgræðslu

Aldur: Miðstig

Verklýsing

  • Nemendum er skipt niður tveggja manna hópa.
  • Til að kveikja áhugann er lagið: Landið fýkur burt með Ríó tríói spilað og nemendur fylgjast með textanum á blaði á meðan hlustað er, eða textanum er varpað upp á vegg.
  • Umræður um hvað átt er við með að landið fjúki burt.
  • Þankahríð. Hvað dettur ykkur í hug þegar þið heyrið orðið landgræðsla? Sandfok? Hefting sandfoks? Lúpína? Melgresi?
  • Kennarinn fer með nemendur sína út í náttúruna að tína plöntur. Nemendur greina síða plönturnar með aðstoð bóka eða Netsins. Plönturnar eru síðan þurrkaðar inn í dagblöðum.
  • Nemendur líma plönturnar á spjöld og skrifa heiti þeirra við bæði á íslensku og latnesku.
  • Nemendur skrifa uppkast af texta þar sem þeir lýsa plöntunni, þegar þeir hafa aflað sér upplýsingar um hana t.d. hve stór hún getur orðið, hvar hún þrífst best, hvenær hún blómgast. Kennarinn fer yfir textann og að því loknu skrifa nemendur textann í tölvu. Textinn er síðan límdur við plöntuna á spjaldinu.
  • Nemendur teikna skýringarmynd af líkamshlutum plöntunnar og skrifa skýringar við t.d. blóm, laufblöð, stöngull og rót.
  • Hóparnir gera könnun meðal bekkjarfélaga hvaða blóm þeim þykir fallegast. Blómið sem hlýtur flest atkvæðin verður kallað bekkjarblómið. Nemendur setja könnunina upp í línurit.
  • Skrifa sögu um plöntu. Nemendur eiga að persónugera plöntuna, setja sig í spor hennar. Skrifa fyrst uppkast sem kennarinn fer yfir og hreinrita síðan í tölvu, setja mynd við og prenta út.

 

Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is