Forsíða

Landgræðsluplöntur

Melgresi

Alaskalúpína

Baunagras

Túnvingull

 

 

Melgresi (Leymus arenarius)

 

 

Engin planta heftir sandfok eins vel og melgresið. Melgresið safnar í sig foksandinum og myndar ýmist breiður eða melhóla. Sandlagið þykknar smám saman þar sem melgresið vex og verða hólarnir oft 3-5 m háir. Yfirleitt kemur að því að hólarnir verða óstöðugir og vindur tekur að rífa sand úr hlíðum þeirra og melgresið lætur undan síga.

Melgresið góða. Mynd: Sigríður Guðnadóttir

 

Sjá heimildaskrá.
Myndir: Jón B. Hlíðberg og Sigríður Guðnadóttir


Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is