Miðaleikur
Markmið:
• Að efla samskipti innan bekkjarins.
• Æfing í að nota leitarspurningar og útilokunaraðferð.
• Festa ákveðin nöfn eða atriði í
minni
Aldur: 9 ára og eldri.
Gögn: Miðar með nöfnum/atriðum.
Leiklýsing:
Kennari (eða nemendur) býr til miða - einn miða
á hvern nemanda. Á þessum miðum geta verið
mannanöfn, dýraheiti, landaheiti eða nærri því
hvað sem er.
Einn miði er festur aftan á hvern nemanda (á hálsmálið)
og þess vel gætt að viðkomandi sjái ekki
það sem á miðanum stendur. Taka skal skýrt
fram við bekkinn að ekkert megi láta uppi um nöfnin
fyrr en leikurinn hefst.
Þegar leikurinn hefst rölta nemendurnir um bekkinn og spyrja
hver annan spurninga sem annað hvort er svarað já eða
nei. Á þennan hátt á að finna út
það sem á miðanum stendur. Brýna þarf
fyrir þátttakendum að gefa engar upplýsingar
aðrar en já/nei svör.
Gott er að hafa fleiri miða en fjöldi nemendanna segir
til um. Sumir eru fljótir að finna út orðið
(orðin) á miðanum og vilja fá að reyna aftur.
Úr
leikjabankanum