Póstleikur
Leiklýsing:
Kennari
eða hópur nemenda, sem hefur undirbúið leikinn,
felur t.d. 10 umslög í stofunni. Á hvert umslag
er búið að skrifa það lausnarorð sem
nemendur eiga að leita að. Sem dæmi má nefna
að tengja leikinn landafræði og eru þá
umslögin t.d. merkt hvert sínu landi. Þátttakendur
fá síðan "póstinn" í hendur
en það eru áletraðir miðar (t.d. jafnmargir
og umslögin) og á hverjum miða er eitt nafn (t.d.
nafn á borg, á, vatni, fjalli, þekktri persónu,
vöru sem framleidd er í landinu). Fyrsta verk leikmanna
er að merkja sér miðana. Póstarnir leggja síðan
af stað, leita að umslögunum og lauma miðum sínum
í þau þegar þau finnast. Sá vinnur
sem fyrstur kemur öllum sínum pósti til skila.
Heimildarit,
kortabækur, námsefni og önnur uppflettirit mega
gjarnan vera tiltæk, ásamt Nettengdri tölvu.
Útfærsla,
nokkur dæmi:
Landafræði:
Heimsálfur, lönd, landshlutar, sýslur.
Saga: Mismunandi tímabil.
Náttúrufræði: Umslögin
eru merkt tilteknum vistkerfum en á miðunum eru nöfn
lífvera.
Móðurmál: Orðflokkar.
Heimilisfræði: Fæðuflokkarnir.
Tungumál: Mismunandi staðir (eldhús,
veitingastaður, brautarstöð o.s.frv.)
Úr
leikjabankanum