Rifsberjabaka

Botn
4½ dl hveiti
150 g smjör við stofuhita
½ dl sykur
4 stk eggjarauður

Fylling
900 g rifsber 3 msk sykur

Lok
1 dl strásykur 3 stk eggjahvítur


Undirbúningur

Hreinsið rifsberin og látið í skál, stráið sykrinum yfir og látið berin standa í kæliskáp yfir nótt. Hitið ofninn í 180°C. Setjið hveiti, sykur, smjör og eggjarauður í hrærivélarskál og hnoðð saman. Fletjið deigið út og setjið í bökuform þannig að það þeki vel botninn og kantana.

Fylling

Setjið rifsberin á bökubotninn.

Lok

Stífþeytið eggjahvíturnar ásamt strásykrinum og smyrjið yfir berin. Bakið bökuna í 40-50 mínútur.

Til athugunar

Best er að bera hana fram volga með ís eða þeyttum rjóma.


Til baka