Forsíða

Til kennara

Kennsluverkefni:
Að leita blóma I
Að leita blóma II
Fuglaskoðun I
Fuglaskoðun II
Vefrallý
Vefleiðangur
Krossgáta
Uppskriftir
Leikir

 

 

 

Skordýrin og vindurinn

Markmið: Að þjálfa hugmyndaflug nemenda, snerpu, hreyfiþroska og samvinnu.
Aldur: 6 ára og eldri.
Gögn: Leikvöllur.

Leiklýsing:

Þetta er keppni milli tveggja liða. Annað liðið er vindurinn og tekur sér stöðu fyrir aftan endalínu vallarins. Hitt liðið eru skordýr sem standa fyrir framan vindinn. Skordýrin velja sér einhverja skordýrategund sem þeir hvetja vindinn til að giska á hver sé. Ef vindinum tekst að giska á rétta tegund eiga þau / það að forða sér yfir í sitt bú sem er hinum megin á vellinum. Takist vindinum að veiða skordýr fær hann eitt stig fyrir hvert skordýr sem um leið breytist í vind. Liðin skipta svo um hlutverk. Það lið sigrar sem fær fleiri stig.


Útfærsla:

Hægt er að hafa hvað sem er í stað skordýra, t.d. fugla, plöntur, land, borgir o.s.frv.

Heimild: Leikur lærður í æsku.

Úr leikjabankanum

sigga@olfus.is