Forsíða

Til kennara

Kennsluverkefni:
Að leita blóma I
Að leita blóma II
Fuglaskoðun I
Fuglaskoðun II
Vefrallý
Vefleiðangur
Uppskriftir
Leikir

 

 

Til kennara

Markmið Aðalnámskrár grunnskólans í náttúrufræði voru höfð til hliðsjónar þegar hugmyndir að verkefnum voru gerðar. Auðvelt er að samþætta verkefnin við aðrar námsgreinar s.s stærðfræði, íslensku, myndmennt, tónmennt, íþróttir, heimilisfræði, tölvu- og upplýsingamennt. Það má líka segja að hugmyndirnar falli undir kenningar Howard Gardners s.s. málgreind, rök- og stræðfræðigreind, rýmisgreind, hreyfigreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og náttúrugreind.

Markmið

Að nemandi:

þekki helstu lífverur í næsta nágrenni eða heimabyggð
þekki nokkur séreinkenni dýra og plantna út frá athugun og samanburði
geti af auknu sjálfstæði aflað sér upplýsinga um tiltekið efni eftir fjölbreyttum leiðum í gegnum tölvusamskipti, með athugunum í kennslustofunni og á vettvangi og með heimildavinnu
geti skráð atburði og athuganir á ákveðinn og skýran hátt með tölum og orðum, með aðstoð tölvu og með teikningum

 

Sjá heimildaskrá.
 
Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is