Um
vefinn
Markmiðið
með þessum vef er að kynna stuttlega sögu landgræðslu
í Þorlákshöfn.
Landgræðslustarf við Þorlákshöfn
á sér langa og merkilega sögu og hefur Landgræðsla
ríkisins unnið að henni ásamt sveitarfélaginu
og íbúum þess.

Allt frá upphafi þéttbýlis í
Þorlákshöfn, í kringum 1951, hefur stórkostlegur
árangur náðst í heftingu sandfoks sem
hafði ógnað byggð í gegnum tíðina.
Umgjörð þorpsins hefur breyst úr svörtum
lit í grænan og garðar bæjarbúa
skarta nú háum og fallegum trjám, auk skrautjurtum
sem fáa hefði órað fyrir að hægt
væri að rækta í Þorlákshöfn.
Landgræðsluátakið í Þorlákshöfn
er merkilegt fyrir margra hluta sakir og þess virði
að vekja athygli á því. Vefsíðugerð
fannst mér vel til þess fallin að halda utan
um upplýsingar og fróðleik sem nálgast
mætti á Netinu.
Vinnan
við verkefnið var þríþætt: Að
afla heimilda, leita mynda -velja úr og vinna með,
hanna og setja upp vefinn.
Í sambandi við heimildaöflun hafði ég
fyrst samband við Guðjón Magnússon hjá
Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti sem
hefur haft umsjón með landgræðslunni í
Þorlákshöfn. Hann byrjaði á því
að aka um og ganga með mér um svæðið
innan landgræðslugirðingarinnar og segja mér
undan og ofan af landgræðsluverkefninu i gegnum tíðina,
hvaða aðferðum hefur verið beitt, hvernig jarðvegurinn
er, hvaða jurtir hafa verið notaðar og hvað hefur
skilað bestum árangri.
Aðrar
heimildir sótti ég í rit sem Landgræðsla
ríkisins hefur gefið út, ritgerðir og skýrslur,
auk þess að tala við frumbyggja og aðra íbúa
sveitarfélagsins.
Gunnarsholt
heimsótti ég tvisvar sinnum. Í fyrra skiptið
var þegar Landgræðslan var með „opinn
dag“ í ágúst þar sem starfsemin
var kynnt. Seinna skiptið fór ég, þegar
verkefnið var komið vel á veg og heimildavinnu
að mestu lokið og textinn tilbúinn, til að
fá ábendingar um hvort rétt væri farið
með staðreyndir.
Að afla mynda var ærið verkefni og var ég
svo heppin að komast í myndasafn þeirra Guðjóns
Magnússonar hjá Landgræðslunni og Sigurðar
Jónssonar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi.
Myndir þeirra notaði ég að mestu, auk nokkurra
sem ég tók sjálf. Héraðskjalasafn
Árnessýslu og Bæjarbókasafn Ölfuss
var heimsótt í þeim tilgangi að leita
gamalla mynda en það var lítið upp úr
þeim heimsóknum að hafa. Íbúar
bæjarfélagsins, sem ég leitaði til, voru
reiðubúnir að leggja mikið á sig við
að grafa upp gamlar myndir en þær hef ég
lítið sem ekkert notað í þessu verkefni,
þær bíða betri tíma. Fuglamyndirnar
fékk ég hjá Jóni B. Hlíðberg
og fékk leyfi til að nota þær í
verkefnið. Myndirnar komu allar í stórri upplausn
og minnkaði ég þær allar með leyfi
höfundar og það sama gildir um hinar myndirnar
sem ég nota.
Í upphafi hugsaði ég þennan vef eingöngu
sem fræðslu- og upplýsingavef en ég var
krafin um kennsluverkefni. Ég bjó til hugmyndabanka
og kennsluleiðbeiningar fyrir kennara, auk nokkur nemendaverkefni
fyrir 5. bekk.
Vefurinn er unninn í Dreamweaver og myndirnar í
Fireworks. Eitt lag tók ég upp í Audacity
sem er einfalt hljóðvinnsluforrit og fæst frítt
á Netinu.
Vísað er í heimildaskrá á hverri
síðu og nöfn ljósmyndara birt, jafnframt
birtist texti þegar músarbendillinn er færður
yfir myndirnar og segir hvaðan myndin er og hver tók
hana.
Ég læt staðar numið að svo stöddu,
þó ég eigi heilmikið efni enn. Ég
mun án efa halda áfram með þennan vef
í framtíðinni því viðmælendur
mínir, starfsmenn Landgræðslunnar og sveitarfélagið
hefur sýnt verkefninu áhuga.
Sigríður
Guðnadóttir
 |
|
Gróður
í dvala |
Myndir: Sigurður Jónsson, Sigríður Guðnadóttir
og Guðjón Magnússon