Forsíða

Til kennara

Kennsluverkefni:
Að leita blóma I
Að leita blóma II
Fuglaskoðun I
Fuglaskoðun II
Vefrallý
Vefleiðangur
Krossgáta
Uppskriftir
Leikir

 

 

 

Nú skulið þið setja ykkur í stellingar, því þið eruð í þann veg að hefja vefrallý sem felst í því að vera eins fljót og þið getið að afla upplýsinga á Netinu. Í þessu rallýi eigið þið að ferðast um vefinn - Þorlákshöfn - landgræðsla bjargar byggð. Þið svarið eftirfarandi spurningum með heilum setningum í ritvinnsluskjal. Þegar þið hafið lokið við að svara spurningunum skulið þið vista skjalið undir heitinu – vefrally– á heimasvæðinu ykkar.
    1. Hvenær var landið umhverfis Þorlákshöfn friðað fyrir búfjárbeit með girðingu?
    2. Hvað heitir flugvélin sem notuð er við dreifingu á fræjum og áburði?
    3. Hvað heitir plantan sem best er til þess fallin að hefta sandfok?
    4. Hvert er latneska heitið á Alaskalúpínunni?
    5. Hvaða ár var byrjað á Þorlákshafnargolfvellinum?
    6. Hvað heitir landgræðsluplantan sem er dönsk að uppruna?
    7. Hvað heitir landgræðslustjórinn fullu nafni?
    8. Af hverju getur verið erfitt að nota vélar við sáningu?
    9. Hvert er helsta markmið með landgræðslu í Þorlákshöfn?
    10. Eftir hvern er ljóðið sem er á forsíðunni?
Skrifað af Sigríði Guðnadóttur
sigga@olfus.is