Veiðimaður
Markmið:
Læra nöfn á fiskum eða öðrum dýrategundum.
Aldur: 6 og eldri.
Gögn: Bandspotti og prik.
Leiklýsing:
Nemendur standa í hóp á gólfinu.
Hver og einn velur sér eitthvert heiti á fisk- tegund
og er hann sá fiskur í leiknum. Aðeins einn nemandi
má vera fulltrúi fyrir hverja tegund þannig að
sem flest heiti komi við sögu.
Einn "er'ann" og sá hefur bundið
fyrir augun og fær bandspotta til að veiða með.
Einhver fiskur bítur á og þykist éta beituna
(þ.e. gefur frá sér hljóð). Þá
á veiðimaðurinn að giska á hvaða fisk
hann veiddi. Ef hann giskar rétt þá skipta þeir
um hlutverk, ef ekki reynir veiðimaðurinn aftur að draga
fisk.
Útfærsla:
Leikurinn fær enn meira gildi ef nemendur hafa
myndir af þeim tegundum sem þeir eru fulltrúar
fyrir. Hafa má annars konar veiðimenn og veiða aðrar
dýrategundir. Einnig má hugsa sér náttúrufræðing
sem safnar smádýrum í gildru sína eða
fuglaáhugamann að fanga fugla til merkingar.
Úr
leikjabankanum