|
|
Í
morgun fór ég eldsnemma fram úr, fór í
grænan silkislopp og staulaðist inn í tölvuherbergi.
Nú átti að fara útbúa hljóðskúlptúr
upp á 3 mín.
S.l. vika fór í að læra á klippiforrit
og finna annað forrit til að þjappa hljóðinu
saman í mp3. Langur tími fór í að brjóta
heilann um hvernig ég gæti tekið upp hljóð
og sett inn í tölvuna. Einhverjar græjur varð ég
að hafa og eina lausnin sem ég sá að lokum var að
tengja míkrafón við tölvuna. Á Selfoss var
brunað og fjárfest í míkrafón.
Upp hófust miklar kúnstir með röddina en ég
heyrði fljótlega að þetta var of einhæft þó
mér fyndist mér takast vel upp! En þennan laugardagsmorgun
var þemað orðið: Morgunstund gefur gull í mund.
Ég raðaði borðum í kringum mig og á þau
raðaði ég ýmsum gagnlegum hlutum til að framkalla
hljóð eins og vekjaraklukku, tannbursta, tannkrem, vatn, pilluglös,
vatnsglös, kaffivél, brauðrist, ristað brauð,
hrökkbrauð, smjör, hníf, dagblöð, stól,
leðurstígvél, hurð og geislaspilara með geisladisk
í. Þegar listaverkið var tilbúið var klukkan
að ganga fimm og ég enn í silkisloppnum græna
en komin í leðurstígél upp á miðja
kálfa sem ég notaði til að búa til fótatak.
Ég gleymdi stund og stað. Hungrið sagði ekki einu sinni
til sín enda búin að innibyrða nokkrar ristaðar
brauðsneiðar til að ná hljóðinu þegar
brauðið var smurt og tuggið.
Klippiforrit: Audacity
Tónlist: Who Will Buy?; Paula West
Lengd: 3.30 mín.
|