Samantekt um verkfæri námskeiðsins
Margmiðlun til náms og kennslu

á vorönn 2004

 

Inngangur
Í greinagerð þessari mun ég leitast við að gera úttekt á þeim verkfærum sem við höfum verið að vinna með á námskeiðinu Margmiðlun til náms og kennslu. Ég ætla að reyna að átta mig á því hvernig ég get nýtt þær hugmyndir, sem ég hef fengið á námskeiðinu við gerð ýmissa viðfangsefna, í kennslustarfinu. Ég mun skoða hvernig viðfangsefnin á námskeiðinu tengjast hugmyndum mínum um menntun og skólastarfi, hvernig ég get látið nemendur mína nýta sér verkfærin í náminu og hver ávinningurinn sé? Ég mun einnig koma inn á það hvernig ég tókst á við þessi verkfæri, sigra og ósigra. Mesta púðrinu mun ég eyða í Mediator, segja frá samþættingarverkefni, sem ég vann í samvinnu við samfélagsfræði- og íslensukennarann og nemendur í fjórða bekk, um heimabyggðina Þorlákshöfn.

Að vinna með hljóð
Fyrsta verkefnið var hljóðvinnsla. Við áttum að búa til svokallaðan hljóðskúlptúr, einhvers konar stemmningu eða hljóðhrif t.d. umhverfishljóð. Í þessu verkefni áttum við að hlaða niður fríu hljóðvinnsluforriti Audacity af Neti. Nauðsynlegt er að vista hljóðskrár í mp3 formi vegna þess hve hljóð er fyrirferðarmikið en forritið bauð ekki upp á það. Þar af leiðandi varð að hlaða niður öðru forriti sem endurskrifaði hljóðið í mp3. Bent var á að hlaða niður forriti sem bar nafnið Lame og varð að hafa _dll endingu. Það kostaði mikla yfirlegu að finna forritið á Netinu, lesa leiðbeiningar og læra á bæði forritin. Þrautinni þyngra var að finna út hvernig taka átti upp umhverfishljóð án þess að eiga til þess tæki og tól. Þrautarlendingin var að kaupa sér hljóðnema og tengja við tölvuna og útbúa hljóðver við hana.
Audacity er ágætis hljóðforrit og kostur að það skuli vera frítt en það er galli að geta ekki vistað hljóðið í mp3, sem er hægt í öðrum hljóðvinnsluforritum. Eftir alla þá vinnu sem fór í þetta verkefni komst ég að því hve gaman er að vinna með hljóð og tiltölulega auðvelt, þegar búið var að ná í viðeigandi forrit, læra á þau og komast að því hvernig setja á hljóð inn á tölvuna með einföldum búnaði. Ég er sannfærð um að nemendum þætti gaman að vinna með hljóð, æfa sig í upplestri, lesa t.d. inn á glærur, segja frá, taka viðtöl og búa til hljóðhrif og nota í verkefnin sín.

Að búa til myndasögu
Í þessu verkefni var ætlast til að við byggjum til atburðarrás í formi ljósmynda sem hefði upphaf, miðju og endi. Við gátum valið um að hafa afraksturinn á vefsíðu eða nota Movie Maker forritið. Æskilegt var að skreyta söguna með einhvers konar hljóðhrifum eða lagstúf. Það mátti líka hugsa sér að búa til sögu út frá lagi. Við fengum sendar slóðir þar sem við gátum lesið okkur til um hvað bæri að hafa í huga við handritsgerð. Á þessari slóð var að finna stafræna matreiðslubók http://www.storycenter.org/memvoice/pages/cookbookleft.html. Og á eftirfarandi slóðum var hægt að skoða stafrænar sögur http://www.bbc.co.uk/lancashire/telling_lives og
http://www.bbc.co.uk/wales/captursewales.
Þetta verkefni tel ég tilvalið að nota með nemendum til að kenna þeim á stafræna myndavél, hvernig setja á myndir inn í tölvu og vinna með þær. Raða myndum upp í atburðarrás og segja sögu. Nemendur gætu sett söguna inn á vefsíðuna sína og skrifað við þær stiklutexta og/eða sett inn tal eða hljóð. Movie Maker forritið er einnig skemmtilegt að nota til að segja stafrænar myndasögur með texta, tali og hljóði.

Að búa til örkennsluverkefni
Hér var unnið með myndband, glærur og hljóð. Taka átti upp stutt kennsluverkefni á myndband u.þ.b. þriggja mínútna langt, klippa það og útbúa glærur sem setja átti við myndbandið. Til að klippa myndbandið var notað forritið Movie Maker, og Microsoft Producer for Microsoft Office PowerPoint 2003 var notað til að steypa myndbandinu og glærunum saman í eina heild. Bæði þessi forrit er góð og auðveld í notkun og hægt að nálgast frítt af Neti og ættu að auðvelda kennurum jafnt sem nemendum að koma verkefnum sínum á framfæri á Netinu. Gildi kennslumyndbanda og talsettra glæra hefur sannað sitt ágæti í gegnum þetta nám. Það er afskaplega gott að geta horft og hlustað á leiðbeiningar þegar læra þarf á ný verkfæri og geta skoðað aftur og aftur. Þannig lærði ég t.d. á Impatica for Power Point sem samnemandi minn benti á. Þetta forrit þýðir talsettar glærur og gerir það að verkum að þær verða margfalt léttari í flutningi á Netinu en venjulegar glærur. Gæðin minnka að vísu en það er þess virði að þurfa ekki að bíða í óratíma eftir að verkefnin hlaðist niður. Þetta forrit er hægt að fá til reynslu í u.þ.b. þrjár vikur. Nemendum þykir án efa fengur í því að sýna afrakstur verkefna sinna í formi stuttmyndar og talsettra glæra. Að mínu mati ætti ekki að vera því neitt til fyrirstöðu fyrir tölvukennara að prófa það í samvinnu við aðra kennara og/eða bjóða stuttmyndagerð sem val hjá eldri nemendum.

Að búa til hreyfimyndir
Flash forritið sem við fengum að kynnast á námskeiðinu er án efa verkfæri verkfæranna. Það eru búið ótal möguleikum sem prýða má eitt margmiðlunarforrit. Kennsluforrit í lesþjálfun og stærðfræði, sem Námsgagnastofnun hefur verið að gefa út á síðari misserum fyrir yngstu börnin eru útbúin í Flash. Þau eru lifandi og skemmtileg því afar vinsæl hjá börnunum enda bjóða þau upp á tal, texta, lög, myndir, hreyfimyndir og gagnvirkni.
Það var gaman að kynnast þessu forriti og sjá alla möguleikana sem það býður upp á í sambandi við námsefnisgerð. Mér skilst að nemendur sem hafa fengið að kynnast þessu forriti séu afar ánægðir með það.

Að búa til stuttmynd
Þetta var þarft og skemmtilegt verkefni. Það er nefnilega nauðsynlegt fyrir kennara að kunna á myndatökuvél sem eru án efa til í hverjum skóla. Myndatökuvél er þarfaþing í kennslu t.d. er ekki úr vegi að taka kennslustund upp á myndaband svo kennarinn megi vega og meta kennslu sína. Einnig væri gott fyrir hann að taka upp t.d. upplestur nemenda og skoða sameiginlega með þeim og fara yfir hvað þarft sé að hafa í huga þegar lesið er upp s.s. líkamsbeitingu, raddbeitingu og túlkun svo eitthvað sé nefnt. Einngi væri gaman og gagnlegt að láta nemendur taka upp skemmtanir og uppákomur í skólanum og jafnvel gaman að láta nemendur skila verkefnum sínum á myndbandi.

Að búa til kennsluefni í Mediator
Mediator er forrit sem hægt er að nota til að útbúa gagnvirkt efni. Notandi getur notað texta, myndir, hljóð, hreyfimyndir og myndband til að útbúa margmiðlunarefni. Uppsetning á forritinu er auðvelt og forritið er tiltölulega auðvelt í notkun. Hjálpin í forritinu er mjög góð. Auðvelt er að setja hljóð inn á verkefnin en þess ber að gæta að hafa hljóðið í mp3 formi svo það taki ekki eins mikið pláss. Það er auðvelt að vinna með myndir í Mediator þ.e. að stækka þær og minnka . Betra er þó að vinna myndirnar í myndvinnsluforriti áður, svo að gæði þeirra haldist.

Mig langaði að prófa að vinna með nemendum í þessu forriti í samvinnu við bekkjarkennara. Kennari sem kenndi samfélagsfærði og íslensku í fjórða bekk var tilbúinn að fara í samstarf með mér. Við ákváðum að samþætta ritun, samfélagsfræði og tölvu- og upplýsingatækni. Verkefnið var Heimabyggðin mín - Þorlákshöfn.

Áður en vinna hófst
Áður en byrjað var á verkefninu hittumst við kennararnir og ræddum um framkvæmd verksins., röðuðum nemendum tveimur og tveimur saman í hópa og ákváðum vinnutilhögun hvers pars. Við samræmdum kröfur okkar til nemenda, skipulögðum vinnuna og ákváðum verklok. Viðfangsefnið og vinnutilhögun var kynnt nemendum. Áhugi þeirra vakinn með opnum spurningum og ferð á bókasafn.

Vinnuferli nemenda

Þegar nemendur höfðu komið sér saman um hvað þeir ætluðu að taka fyrir byrjuðu þeir að afla sér upplýsinga í bókum, viðtölum við fólk og á Neti. Þeir flokkuðu upplýsingarnar og nýttu þær sem henta þótti. Myndir voru teknar af viðfangsefnunum. Þar sem nýbúið er að setja upp forritið þá hefur aðeins unnist tími til þess kenna grundvallaratriði þess. En í framhaldi að því geta nemendur velt fyrir sér möguleikum þess og framsetningu efnis. Nemendum verður bent á að samræma litaval og önnur útlitsatriði. Nauðsynlegt er að ákveða hve margar síður hvert viðfangsefni á að vera, innihald og tengingar áður en hafist er handa.

Niðurstöður
Nemendur eiga að kynna verkefnin bekkjarfélögum sínum. Verkefnin verða annað hvort sett út á Netið og/eða brennd á diska til að eignar. Nemendur fá viðurkenningarskjal að lokum.

Framan af hefur verkefnið gengi vel, reyndar er afrakstur hópanna, hvað varðar heimildaröflun og ritun, misjafn eins og gengur. Það kemur í ljós nauðsyn þess, eftir að hafa lesið textana hjá nemendunum, að kenna þeim að skrifa stiklutexta. Fyrstu kynni nemenda á forritinu Mediator lofar góðu. Það verður spennandi að fylgjast með framvindunni.


Lokaorð

Það má kannski lesa út úr þessari samantekt að gerð þessara verkefna hafi gengið vel og snurðulaust fyrir sig , en það var nú aldeilis ekki svo. Eins og fram kemur hér að framan tók vinnan með hljóðskúlptúrinn ótrúlega langan tíma. Glíman við forritið Impatica for Power Point var líka erfið. Tæknimálin voru stundum yfirþyrmandi.

En þegar upp er staðið er ég ánægð með að hafa fengi tækifæri á að kynnast þessum samspili miðlana eins og hljóði, myndum, myndböndum, texta, tónlist og öðru slíku. Námið og kennslan öðlast aðrar víddir þegar þessir miðlar eru notaðir. Ég hlakka til að miðla af reynslu minni til nemenda og kennara sem nú þegar hafa sýnt töluverðan áhuga á þessum miðlum.

Tenglar:
Kennsluefni í Mediator eftir Valdimar Gísla Valdimarsson
Kennsluleiðbeiningar þýddar af Hörpu Hreinsdóttur á kennari.is
Gagnvirkt kennsluefni frá Matchware

Sigríður Guðnadóttir
22.04.2004

Til baka
Heim