Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Eftir kennarapróf fór ég á Sauðárkrók að kenna við Barnaskólann, ásamt fjögurra ára dóttur minni Steingerði Ágústu, sem fædd er 1969. Þar hitti ég mannsefnið mitt Sigurð Jónsson, sem er byggingarfræðingur og starfar sem skipulags- og byggingarfulltrúi hjá Sveitarfélagi Ölfuss.

Eftir ár á Sauðárkróki héldum við til Reykjavíkur og eftir þriggja ára dvöl þar fluttum við til Horsens í Danmörku og vorum þá búin að eignast Helgu Jónu, 1975.

 

Við vorum fjögur ár í Danmörku við nám og störf. Þar starfaði ég við skrifstofustörf hjá símafyrirtækinu ITT Standard Electric Kirk A/S einnig sótti ég hin ýmsu námskeið, þar á meðal eitt í Kennaraháskólanum í Árósum, sem stóð yfir í einn vetur og hét: „Nám og kennsla ungra barna“.

Frá Danmörku fluttum við til Akureyrar þar sem við bjuggum í fjórtán ár. Þar starfaði ég við kennslu, en tók mér frí frá henni í fjögur ár og vann hjá Rúvak sem fulltrúi deildarstjóra og við dagskrárgerð. Á Akureyri fæddist Guðný, 1988.


Árið 1995 fluttum við til Þorlákshafnar og höfum við búið þar síðan. Þar hef ég starfað sem kennari þangað til í fyrravetur, þegar ég fór í orlof og ákvað að gerast tölvunörd .

 

Lesa meira

Heim