Vefrallý


 

Fyrir þremur árum var Vísindavefur Háskóla Íslands opnaður. Hann fjallar um öll vísindi. Þið getið lesið þar spurningar og svör sem þegar hafa komið fram og einnig lagt fram nýjar spurningar um allt milli himins og jarðar sem starfsmenn Háskólans og vefsins geta svarað eða fundið svör við.

 

 

Nú skulið þið athuga hvað þið eru fljót að finna upplýsingar á vefnum. Þið finnið svörin á: http://www.visindavefur.hi.is/ í flokknum:Unga fólkið svarar. Þið skrifið svörin í Word skjal og vistið skjalið í möppuna:visindi á sameign nemenda undir ykkar nafni. Spurningunum eigið þið að svara með setningu.

Og nú hefst leikurinn!

 

 

1. Hver er ritstjóri vefsins?


 

2. Hvað ganga fílar lengi með afkvæmi sín?

 

 

3. Hvað átti Sebastian Bach mörg börn?

 

 

 

4. Hver kleif Everest fyrst án súrefnis?

 

5. Hver fann upp dósaopnarann?

 

6. Hvað hét fyrsta teiknimyndasagan sem gefin var út í dagblaði?

 

7. Geta mýs stokkið og - ef svo er - hversu hátt?

 

 

8. Hver var fyrsti tölvuleikurinn?

 

9. Hvert er elsta knattspyrnufélag í heimi?

 

10. Hvað erum við margar mínútur að ganga í kringum Ísland?

 

Myndir og efni af Vísindavef Háskóla Íslands er birt með góðfúslegu leyfi Þorsteins Vilhjálmssonar.

Þessi síða er gerð 30.01.03
siggud@ismennt.is

Skilasíða

Heim