|
FLENSBORG - NÁTTÚRURFRÆÐI 113
|
|
|
Áfangalýsing og kennsluáætlun - Náttúrufræði 113 Meginmarkmið
áfangans er að kynna helstu viðfangsefni jarðfræðinnar hvað varðar
orkugjafa og nýtingu þeirra. Kennslubók:
Svell er á gnípu – eldur geisar undir eftir Jóhann Ísak Pétursson
og Jón Gauta Jónsson. Iðnú.
2. kafli bls. 25-42. Kort og kortagerð
3. kafli bls. 55-67. Jörðin í sólkerfinu
4. kafli bls. 77-85. Innri gerð jarðar og flekakenningin
5. kafli bls. 112-114. Gosbeltið á Íslandi og eldstöðvakerfi
6. kafli bls. 121-129. Lofthjúpurinn
7. kafli bls. 131-136. Hafið
9. kafli bls. 193, 200. Kol og olía 8.
kafli bls. 139-145, 147-149, 156-159. Vatn og jöklar
12. kafli bls. 241-266. Vatnsorkan
13. kafli bls. 271-295. Jarðhiti og hitaorkan Námsmat:
Metin annarvinna 40% (ástundun, verkefnavinna, heimavinna og tvö
skyndipróf sem gilda hvort 10%). Lokapróf 60%. Nauðsynlegt er að fá 4,5
til að hafa náð áfanganum. Verkefnavinna
– Náttúrufræði 113
Spurningar
– Náttúrufræði 113
Farið
verður yfir svörin í tíma og athugað hvort nemendur hafi unnið sína
heimavinnu. Skyndipróf verða þegar kafla 5 er lokið og kafla 12 er lokið
og gildir hvort próf 10% af annareinkunn. Áríðandi
er að nemandinn geri sér ljóst að hann ber sjálfur ábyrgð á sínu námi,
verkefnaskilum og að afla sér upplýsinga um það sem gerist í
kennslustundum sem hann hefur misst af. Nemendur sem ekki skila verkefnum á
auglýstum tíma fá ekki frest til að skila verkefnum síðar. Það sama á
við ef nemandi mætir ekki í skyndipróf þá fær hann 0 nema hann hafi
tilkynnt veikindi fyrir kl.10.00 skyndiprófsdag og skili staðfestu vottorði
samkvæmt reglum um skólasókn vegna fjarveru sinnar. Geta þarf heimilda við
öll verkefni sem unnin eru. Verkefni sem unnin eru af netinu með því að
“klippa” og “líma” geta fengið einkunnina 0.
Kennari
áskilur sér allan rétt að breyta námsáætlun, verkefnum og spurningum.
|