Bútasaumur – veggteppi

 

Bútasaumur

 

Velkomin öll á vefsíðuna Bútasaumur. Hér er að finna ýmislegt áhugavert sem tengist bútasaum „Quilting“, s.s. upphaf búta-saums, söguna, lista yfir tímarit, bækur og verslanir hér og erlendis o.fl. Bútasaumur hefur verið vinsæll á Íslandi um langa hríð og eftirfarandi krækjur eru ætlaðar til að hjálpa ykkur til að nálgast allt frá sögu þessa handverks til netverslana nútímans. Góða skemmtun!

 

Saga bútasaums |  Efni –Kennsla–Sýningar | Tímarit og bækur | Verslanir | Áhugaverðar krækjur

Saga bútasaums

 

5

Margir telja að upphaf bútasaums megi rekja til Ameríku en fæstir vita að upphafið má rekja allt aftur til Egyptalands hins forna. Sjá fróðleik hér. Bútasaumurinn eins og við þekkjum hann í dag er einkum í gerð vegg- og rúmteppa úr mislitum bútum ýmist handsaumuðum og/eða vélsaumuðum. Ýmsar heimildir eru til um þetta handverk frá Ameríku og er hér er stutt samantekt frá Margréti Árnadóttur, bútasaumskonu með meiru. Vegna gífurlegs áhuga á bútasaum um víða veröld hafa sprottið upp búta-saumsklúbbar, þar sem unnið er með allt mögulegt varðandi bútasaum. Má þar t.d. nefna saumaskap á „vina-blokkum“ sem eru síðan settar saman í teppi, spjallklúbbar fyrir þá sem eru „langt leiddir“ í bútasaum o.fl.

Efni–Kennsla–Sýningar

 

5

Ýmis gagnleg tæki og áhöld til bútasaums eru fáanleg, s.s. stikur og skapalón (Templates), saumavélar af ýmsum gerðum, vélar til að stinga teppi og margt fleira; allt til að létta undir handverksfólkinu. Ekki eru síðri vefsíðurnar um efni, liti og litun og svo eru til ýmsar vefsíður um kennslu í bútasaum bæði fyrir börn og fullorðna. Talsvert er um sýningar á bútasaum og ýmsu tengt honum bæði hér á Íslandi þó þær séu nú umfangsmeiri í Ameríkunni.

Tímarit og bækur

5 

Tímarit–Magazines:

Bækur:

Verslanir

 

5

Ýmsar bútasaumsverslanir og framleiðendur efna veita þjónustu í gegnum Netið. Flestar verslanirnar eru með sjálfvirka pöntunar-þjónustu á öllu er tengist bútasaum. Mjög auðvelt er að nota þessa þjónustu. Þær erlendu miðast aðallega við Bandaríkin jafnvel þó að um alþjóðlega póstverslun sé að ræða. Ánægjulegt hversu gott úrvalið er og handhægt að nýta sér Netið!

Áhugaverðar vefsíður

 

5

5


Póstur: Sólveig Friðriksdóttir