Áfanginn
USF1036 „Upplýsinga- og samskiptafræði“
er einn af skylduáföngunum á Upplýsinga- og
tæknibraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Kennslan í honum hefur verið hefðbundin en hér verður
hún skipulögð sem fjarnám í sex lotum sem
ná yfir 13–14 vikur.
Markmiðið
er að brjóta upp staðbundna kennslu og gera nemendum kleyft
að vinna sjálfstætt í afmörkuðum lotum.
Gert er ráð fyrir að nemendur nýti sér námskeiðið
jafnóðum í námi.
Fjarnámskipulag
í USF 1036
Markhópur:
Nemendur á UT-braut FB
Námsgögn:
Nemendur fá aðgang að námsgögnum á læstu
innraneti FB
Markmið:
Sjálfstæð vinnubrögð
Nemendur kynnist heimasíðugerð
Valdar
vefsíður skoðaðar, lagt á þær
mat og nemendur nýti sér það við gerð
lokaverkefnisins sem er eiginn vefur
Farið
yfir „Siðfræði Netsins“ og höfundarréttur
á Netinu veginn og metinn
Samskiptaforrit
skoðuð og ýmsar leitarvélar
Farið
í glærugerðarforritið PowerPoint
Útlit
og umbrot – helstu reglur kynntar
Námsmat:
Gagnvirkt próf í vefsíðugerð í HTML
Þátttaka í spjallborðum (umræður og framlög)
Kynning á eigin vef í PowerPoint
Eigin vefur (a.m.k. 4 síður)
Vefdagbók (Blogg)
15%
20%
10%
50%
5%
Lota
1 – Mat á vefsíðum 1–2
vikur
Nemendur
setji upp eigin vefdagbók og sýni framvindu námsvinnunnar
þar nokkuð reglulega
Nemendur
sækja fyrirlestur frá kennara á hljóðglærum
á innra netið um mat á vefsíðum
Nemendur
skoða valdar vefsíður samkvæmt aðferð Jakobs
Nielsen o.fl.
Nemendur
leggja mat á vefsíðurnar samkvæmt fyrirmælum
kennara
Kennari
setur umræðuefni á spjallborð um mat á vefsíðum
þar sem fjallað er um ýmis álitamál og
fleira varðandi vefsíður s.s. útlit, hleðslutíma,
nýtingu á plássi o.fl.
Nemendur
taka þátt í umræðum á spjallborði
Skylduþátttaka
í umræðum á spjallborði
Lota
2 – Siðfræði netsins
1–2 vikur
Nemendur
sækja fyrirlestur frá kennara á hljóðglærum
á innra netið um siðfræði Netsins
Kennari
skiptir nemendur í hópa og setur fram þrjú
umræðuefni á spjallborð um siðfræði
Netsins, álitamál og vangaveltur
Nemendur
senda inn framlög og taka þátt í umræðum
á spjallborði samkvæmt hópaskiptingu kennara
Nemendur
senda kennara í tölvupósti álitsgerð um
framlög annarra og umræðuna, u.þ.b. ein síða
Lota
3 – Höfundaréttur
1–2 vikur
Nemendur
skulu finna síður og greinar um höfundarétt á
Netinu og kynna sér þær
Nemendur
sækja fyrirlestur frá kennara á hljóðglærum
um samantekt á höfundarrétti á innra neti
skólans
Kennari
setur fram umræðuefni á spjallborð um álitamál
og ýmsar vangaveltur sem tengjast höfundarétti á
Netinu
Nemendur
taka þátt í umræðum á spjallaborði
Skylduþátttaka
í umræðum
Lota
4 – Vefsíðugerð í <html>
2 vikur
Nemendur
fara í gegnum sex verkefni í html-skipanamálinu
þar sem kynntar eru og æfðar helstu skipanir þessa
vefsíðumáls.
Fyrirmælin liggja miðlægt á innra neti skólans
Nemendur
senda æfingarnar í tölvupósti til kennara sem
fer yfir þær og skilar til nemenda með endurgjöf
Nemendur
taka í lok lotunnar gagnvirkt próf í html-skipanamálinu
innan ákveðins tíma
Lota
5 – Vefur unninn í Dreamweaver
5 vikur
Nemendur
skoða kóðann sem liggur að baki vefsíðugerðarforritinu
Dreamweaver
Nemendur
gera drög að eigin vefsíðu, setja
fram markmið og tilgang og senda þau kennara í tölvupósti
Kenndir
eru grunnþættir Dreamweaver með fimm verkefnum frá
kennara sem liggja miðlægt á innra neti skólans
Kennari
vísar í kennslusíðu um helstu gerðir mynda
og visturnarmöguleika fyrir hina ýmsu miðla
Kennari
leiðbeinir um skönnun mynda á kennslusíðu
Nemendur
vinna að gerð lokaverkefnis sem er eigin vefur með 4-8 síðum
og þar skal vera: aðalsíða (index), náms-
og verkefnasíða, áhugamálasíða og
síða með ýmsum tenglum er tengjast náminu
Nemendum
er þó frjálst að bæta við allt að
fjórum síðum
Lota
6 – Kynning á lokaverkefnum nemenda
1 vika
Nemendur
sækja fyrirlestur frá kennara á hljóðglærum
á innra netið um framsetningarforritið PowerPoint
Nemendur
vinna kynningu á eigin vefsíðu í PowerPoint
og senda hana kennara sem viðhengi í tölvupósti
Nemendur
skoða kynningar samnemenda á vefsíðu áfangans
og hefur kennari sett krækjur í allar kynningarnar