Til baka á skilasíðu

Rannsókn á vegum dr. Sólveigar Jakobsdóttur um það hvernig fólk notar netið í kringum okkur.

Hugleiðing um rannsóknina send á WebBoard NKN3 6. apríl, vorið 2003.

Ágætu samnemendur,
ég hef verið að fara í gegnum rannsóknir ykkar samkvæmt fyrirmælum Sólveigar og ég hef ekki rekist á enn sem komið er neinar kannanir á framhaldsskólanemendum.

Þar sem ég er í orlofi hef ég ekki beinan aðgang að nemendum og hef heldur engin börn heima sem stendur. Ég tók því á það ráð að fá leyfi í einum framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Fórum við Ólöf saman einn föstudagseftirmiðdag þar sem við vorum búnar að fá leyfi til að fylgjast með í kennslustund í tölvunotkun en tókum hins vegar á það ráð eftir smá íhugun að fygljast með nemendum í tölvuveri þar sem 14 nemendur sátu við vinnu í tölvum, ýmist sérhæfðum verkefnum eða leik. Þar sem tíminn var naumur valdi ég mér tvær stúlkur og tvo drengi, eiginlega sem voru þannig staðsett í stofunni að þægilegt var fyrir mig að fylgjast með þeim. Auðvelt var að fá leyfi þeirra þar sem þau voru öll orðin 18 ára nema einn og það var sonur Ólafar, þannig að ég fékk einnig leyfi hennar fyrir athuguninni.

Þetta var reglulega skemmtileg könnun, verkefni nemendanna voru mismunandi og þau voru sum greinilega að drífa sína vinnu af því það var að koma helgi. Það sem ég var ánægðust að sjá var að öll notuðu þau fingrasetningu og það nokkuð rétta þannig að þau voru mjög snögg með allan innslátt. Það er reyndar atriði sem mér finnst ekki lögð nógu mikil áhersla á í mörgum grunnskólum þó ég viti að það sé í mjög góðu lagi í mörgum grunnskólum. Þau höfðu öll tekið tölvuáfanga í framhaldsskólanum og greinilega lært rétt vinnubrögð í því sambandi nema sá sem var 16 ára. Hann var þó mjög leikinn á lyklaborðið og var greinilega vanur að nota netið í leit t.d. að DVD-myndum, athuga verðlag o.fl.

Tveir af þeim sem ég fylgdist með voru að blogga og komst ég að því að það er mjög algeng iðja hjá framhaldsskólanemum. Ekki eru þau eingöngu sjálf að blogga heldur sátu þau þarna í tölvuverinu og lásu blogg hjá öðrum heillengi. Það lengi að ég varð eiginlega forviða. Það var fátt sem truflaði þau í því nema þegar þeim fannst sem aðrir í stofunni þyrftu að heyra eitthvað sérstakt sem þau sáu þar og áttu þá sér stað ansi skemmtileg samskipti.

Númerin frá mér í innlögninni eru 370, 371, 373 og 374.
Eru ekki flestir búnir með sínar kannanir, ef ekki gangi ykkur þá vel að ljúka þeim.

Kveðja

Sólveig Friðriksdóttir

Til baka á skilasíðu