|
||
Haustið
2002 hófst í Ártúnsskóla
þróunarverkefni sem miðaði að því
að efla sjálfstæði nemanda með fötlun sem
þá var í 3. bekk. Verkefnið stóð yfir formlega í 2 vetur. Nemandinn er með fartölvu sem hann
notar heima og í skólanum en hér er um samvinnuverkefni
heimilis og skóla að ræða. Skoðaðar hafa
verið ýmsar leiðir til að nýta fartölvuna
í náminu þannig að nemandinn geti verið virkur
þátttakandi í bekkjarstarfinu. Við söguðum
frá þessu verkefni á UT2003 undir heitinu Sjáðu
sæta skjáinn minn. Það verkfæri sem hefur
nýst okkur best er ritvinnslu- og margmiðlunarforritið.
Clicker4 en með þvi er hægt að sníða verkefni
að þörfum nemandans. Í vetur hefur áherslan
verið lögð á frekari verkefnagerð í Clicker,
lestrarbækur í Clicker og vinnu með tal og hljóð.
Þá höfum við einnig skoðað möguleika
tengda nýtingu fartölvunnar í samvinnunámi í
bekknum.
Helstu
niðurstöður: Þrátt fyrir að verkefninu sé formlega lokið þá hafa þessi vinnubrögð fest sig í sessi. Þannig eru fartölvan og forritið Clicker mikilvæg hjálpartæki við nám nemandans. Kristín Steinarsdóttir og Ingibjörg Haraldsdóttir |
||