Markmiðið
með þessum vef er að kynna það frábæra
verkfæri sem forritið Clicker4 er fyrir kennurum sem áhuga
hafa á að nýta sér þetta verkfæri
með börnum með sérþarfir. Þar sem
hér er um að ræða mjög opið námsumhverfi
vona ég að ákveðin grunnþekking á
þessu verkfæri fáist með því að
fara í gegnum þennan vef. Kennarar ættu þá
að vera í stakk búnir að byrja notkun þess.
Sýnishornin af verkefnum gefa hugmyndir að notkun en síðan
er það hugmyndaauðgi hvers kennara og þarfir þeirra
barna sem unnið er með sem ákvarða verkefnin fyrst
og fremst. Þetta er því mjög öflugt tæki
til að nýta í skólastarfi án aðgreiningar.