| Hugmyndin að
stuttmyndinni:
Mikilvægt er að benda á skóla og aðstæður þar sem vel tekst til að koma til móts við fatlaða nemendur í almennum grunnskóla. Stefna fræðsluyfirvalda í Reykjavík er skóli fyrir alla. Nokkuð mismunandi er hvernig staðið er að þessum málum í einstökum skólum og eins hversu vel búið er að nemendum. Sérþekking er oft af skornum skammti sem leiðir til þess að hræðslu gætir meðal kennara að taka að sér fatlaða nemendur inní almenna bekki. Mín hugmynd er að gera stuttmynd sem sýnir aðstæður þar sem vel gengur með nám fatlaðs nemanda í almennum bekk. Það sem mestu skiptir í þessu sambandi er góður vilji og skilningur kennara og skólastjórnenda og fjölbreyttir kennsluhættir. Myndin á að sýna nemandann, skólafélaga og kennara í mismunandi aðstæðum. Þannig ætti myndin að geta gefið hugmyndir um það hvernig hægt væri að bregðast við þessum aðstæðum þó svo að enginn fatlaður nemandi sé eins og aðlaga þurfi að hverjum og einum. Áhersla er á myndatöku við eftirfarandi aðstæður: Kristín Steinarsdóttir stina@ismennt.is |
||