Helsta áhugamálið er hestamennska. Það hefur gengið svo langt að ég stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið Eldhesta ehf. árið 1986, ásamt félögum mínum þeim Hróðmari Bjarnasyni (hrodmar@eldhestar.is) og Sigurjóni Bjarnasyni (sigbjar@ismennt.is). Megin starfssvið Eldhesta er langar og stuttar hestaferðir, ferðaheildsala, bændagisting, gönguferðir o.fl. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Völlum í Ölfusi (rétt austan við Hveragerði). Framkvæmdastjóri er Hróðmar Bjarnason. Netfang Eldhesta er: info@eldhestar.is og vefslóðin : http://www.eldhestar.is Netleikur Eldhesta fór í loftið 1. desember 1999, en enn sem komið eru allar upplýsingar á ensku.

Veflóð leiksins er: http://www.horsegame2000.is

Netfang mitt hjá Eldhestum er: thorsteinn@eldhestar.is


Heim