Smellið hér til að fá stærri mynd.

HOLTAKOT
Þingeyjarsveit

Myndskýring

Innihald:

Albúm
Annáll
Kort
Slóðir
Veður og færð.
Síðustu myndir.
NÝTT: "Panorama" júlí 2006

Locations of visitors to this page

Myndin er tekin til vesturs frá Holtakoti, Ljósavatnsskarð er fyrir miðju. Ef hér er gömul mynd eða engin mynd, þá hefur samband rofnað við myndavélina.
Vefmyndavél; Ný mynd á 5 mín. fresti

Hér er hraðspólun síðustu mynda
12 tímar eða 24 tímar.

Smellið hér fyrir samantekt um veður og færð.

Þetta vefsvæði er tileinkað átthögum og umhverfi.
Hér má svo finna eitthvað um kennslu í VMA og heimasíðu Verkmenntaskólans á Akureyri

Þessi síða hefur verið skoðuð
   
sinnum síðan talning hófst árið 2001.

Uppfært: 07 ágú. 2006 14:51 - Þórhallur Ragnarsson.

Myndavélin horfir út um stofugluggann til vesturs í átt að Ljósavatnsskarði.  Kinnarvegamót eru á miðri mynd og bærinn Kross örlítið ofar. Nær til vinstri er jaðar Ódáðahrauns, úr hraunjaðrinum rennur lindarvatn í á, sem í hálfa öld hefur séð íbúum kotsins fyrir neysluvatni og raforku. Lónið sem sést fyrir miðri mynd myndaðist við virkjun árinnar. Neðst í myndinni liggur hitamælir kvarðaður í °C, hann er nokkuð réttur fram að hádegi,  en síðdegis fær hann oft bjartsýnisköst þegar sólin skín óhindrað á hann. 


11. júlí 2010:
Gert við úrkomumæli.

2. janúar 2008:
Veðurstöð: Smellið á myndina hér neðan við fyrir ýtarlegra yfirlit.

Upplýsingar frá Conrad WS3600 veðurstöð sem er í garðinum við húsið í Holtakoti. Ef mynd vantar þá má reyna [REFRESH] eftir smá stund.
Því miður kemur lýsingin frá veðurstöðvarforritinu á ensku,
Hér má þó sjá hana á íslensku að hluta til.



Vélbúnaður og hugbúnaður:

Creative WebCam II Parallel vefmyndavél, 
350MHz Pentium II, 256mb ram, 80gb hd, Windows XP-Pro, CaptureMax 2.0, Conrad/La Crosse WS3600, Weather Display, 64k-ISDN-netsamband.