Lokatónleikarnir

Vefleiðangur fyrir 14 ára og eldri
Þórhalla Arnljótsdóttir

 

Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

Kynning

Þú ert einn af mörgum þátttakendum á námskeiði fyrir nemendur á tréblásturshljóðfæri og nú er komið að því sem dró þig hingað. Næstu 8 vikur fara í undirbúning fyrir tónleika sem þátttakendur skipuleggja í samvinnu. Námskeiðshaldarar hafa ákveðið tímasetningu, útvegað húsnæði og munu sjá um auglýsingar. Kennarar eru til taks fyrir æfingar, hljómsveitarstjórnun og aðstoð við vefsíðugerð. Allt annað er lagt í ykkar hendur.

efst á síðu


Verkefni

Afraksturinn á að verða þessi :

  • Þema fyrir tónleikana .
  • 5 tónverk, valin þannig að allir þátttakendur njóti sín.
  • Prenthæf tónleikadagskrá á heimasíðu námskeiðshaldara með fróðleik um þema, verk, höfunda og þátttakendur.
  • Samningur við sérfræðing á efni innan þemans um að sitja tónleikana og taka þátt í vefráðstefnu um efnið í framhaldi af tónleikunum.
  • Kynning og flutningur á tónleikunum.

efst á síðu


Bjargir

Á netinu eru margir tónlistarvefir með upplýsingum um verk og höfunda. Þar er líka að finna heilmikið af nótum Mikilvægustu bjargirnar ykkar verða þó sennilega kennarar við skólann sem annað hvort hafa sérhæft sig í þemanu eða hljóðfærunum. Ef valið verður þema sem fellur utan sérþekkingar þeirra, útvega þeir nýjan sérfræðing í hópinn.

Ath.: Smellið á myndirnar til að komast í efnið sem lýst er fyrir framan þær

    Íslenski vefurinn Músa er frábært dæmi um fjölbreyttan tónlistarvef: Út frá honum er hægt að komast í allar áttir.
 
    Síða fyrir tréblásturshljóðfæraleikara
 
   

Spilari með Klezmer tóndæmum og fleiru.
( Krækja virkar ekki nema %2B sé breytt í + á þremur stöðum )

http://www.jewishmusic.com/cgi-bin/SoftCart.exe/listeningstation.htm?L+tarashop+dunm6129+992187462  
    Íslenska tónverkamiðstöðin: Hér má leita að verkum, höfundum og fleiru  

Þemu geta tengst tónlistarmönnum, tímabilum, stefnum eða straumum. Eins mætti hugsa sér árstíðir, landsvæði, tilfinningar og margt fleira. Hér eru nokkur dæmi :

             
    Mozart Gershwin Klezmer Heimstónlist  
    Vínarklassík,
Impressíonismi
Vorið, Kúba, Ástin....
             

 

 

Um samvinnu  
  Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga við samvinnu
 

Um vefráðstefnur

 
  Notast verður við umhverfið WebCT, hér er dæmi um hvernig hægt er að nota það :

  Um vefsíðugerð  
  Vangaveltur um smíði og viðhald á tónlistarsíðum
  Myndefni tengt tónlist
  Litir á vefsíðum

 

efst á síðu

 

Ferli

   
 
Vika 1

Skipt í fimm manna hópa með sem fjölbreyttustum hljóðfæraleikurum. Hver hópur fer yfir hugmyndir að þema, kemur sér saman um eitt og rökstyður valið. Hér er upplagt að nota hugarflugstækni (Brainstorming) .
Hóparnir hittast, bera saman hugmyndir og koma sér saman um þema.

   
 
Vika 2

Sömu hópar finna 5 tónverk sem falla að þemanu og rökstyðja valið. Hóparnir hittast, bera saman tillögur og velja eitt verk frá hverjum hóp.

   
 
Vika 3
-
Vika 6

Skipt í nýja 5 manna hópa (starfsrófsröð).
Verk æfð í samvinnu við leiðbeinendur.
Nýju hóparnir skipta með sér eftirfarandi verkefnum :

    1. Þemasíða
    2. Verkasíðu
    3. Höfundasíða
    4. Flytjendasíða
    5. Samræming og tónleikadagskrá með krækjum í 1-4

Ef hóparnir ná ekki samkomulagi, gæti hjálpað að skoða þetta:

Samningur við sérfræðinga og undirbúningur fyrir vefráðstefnu. Hver hópur finnur einn þátttakanda, kennarar verða til ráðgjafar.

     
 

Vika 7
-
Vika 8

Vefráðstefna. Hver þátttakandi kemur með a.m.k. tvö framlög tengd þemanu og bregst við a.m.k. þremur framlögum annarra. Munið að sá sem aldrei gerir mistök, geri sennilega ekki sérlega mikið yfirleitt !

efst á síðu


Mat

 

Leiðangur farinn í tómstundanámi :
Þáttakendur eru beðnir að svara könnunum í lok hverrar viku til að stöðugt sé hægt að endurskoða skipulag námsins í samræmi við þarfir og óskir nemendanna. Frammistaða nemenda er ekki ekki metin formlega nema sérstaklega sé óskað eftir því og þá er það gert á sama hátt og fyrir nemendur í formlegu tónmenntanámi (sjá næsta lið). Eflaust mætti túlka lófatak gesta á lokatónleikum sem einhvers konar mat á frammistöðu hópsins.

 

Leiðangurinn sem áfangi í formlegu tónmenntanámi :

Matinu má skipta í fimm hluta :

Sjálfsmat 10% Einstaklingseinkunn
Kannanir í lok hverrar viku. Ath. Hér er horft á hve meðvitaðir þátttakendur eru um
viðfangsefnið og ferlið, ekki hvaða mat þeir leggja á innihaldið eða eigin frammistöðu.

Könnun eftir viku 1

Mat á ferli í hverjum hóp 20% Hópeinkunn
Hópurinn fær sameiginlega einkunn þar sem helst er horft á samvinnu, hvort allir leggi sitt af
mörkum, sýni ábyrgðartilfinningu og virði skoðanir annarra. Litið verður á hvort framvinda hafi fylgt áætlun.

 

Sjá nánar hér :

     

Mat á tónleikum 25% Sameiginleg einkunn fyrir alla
Litið verður á heildarsvip tónleikanna út frá þemanu , kynningu og flutning.

Mat á vefsíðum 25% Hópeinkunn
Sjá viðmið:

Mat á þátttöku í vefráðstefnu 20%. Einstaklingseinkunn Lokið / ólokið
Hver þátttakandi kemur með a.m.k. tvö framlög tengd þemanu og bregst við a.m.k. þremur
framlögum annarra.

efst á síðu


Niðurstaða

Nú er tónleikunum lokið og þið hafið sennilega fengið staðfest að jafnvel prímadonnur geta áorkað meiru í samvinnu við aðra en sóló ! Þekking á þemasviðinu hefur margfaldast, bæði með því að þið könnuðuð hvert ykkar svið og lögðuð síðan í púkk. Með þessa þekkingu og reynslu af túlkun á verkunum, hafið þið síðan náð að tengja hlutina í umræðum og vangaveltum, og sérfræðingurinn hefur vonandi bætt kjöti á beinin þar sem áhugi ykkar var mestur.
Ekki er ólíklegt að til ykkar verði leitað sem sérfræðinga á þemasviðinu í framtíðinni.

efst á síðu


Síðast uppfært 10.06.2001
© Þórhalla Arnljótsdóttir

 

Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.