|
Vefleiðangur
fyrir 6. bekk - Heimilisfræði, tónmennt og upplýsingamennt
Þórhalla
Arnljótsdóttir
Tölvupóstur

| Kynning
|
 |
Árið er
2020 og þið ákváðuð að taka haustönnina
í 6. bekk á Hawaii. Þó ekki sé jólalegt
um að litast, er aðventan á næsta leyti. Í
hópnum eru þó nokkrir frá Danmörku,
Finnlandi, Póllandi og Þýskalandi sem strax eru
farnir að sakna jólaundirbúningsins heima.
Í heitri golunni
undir pálmatré ákveðið þið að
halda jólaboð fyrir allan hópinn. Samlandar leggja
til veislunnar rétt, köku, skraut, syngja jólalag
og segja frá einum jólasið að heiman. Allt virðist
svo einfalt hér á ströndinni, og því
er ákveðið að setja upp vef sem fjallar um jólin
í löndunum fjórum þar sem verða meðal
annars spjallrásir fyrir fólk með heimþrá
um jólin. Þetta síðasta verður þó
að bíða eitthvað áfram.
Heimilisfræði-,
tónmennta- og upplýsingamenntarkennararnir á Hawaii
grípa hugmyndina og nú er komið að fyrsta skrefi.
Efst á síðu

| Verkefnið
|
 |
Næstu vikur
notið þið alla tíma í fögunum þremur
til að koma hugmyndinni í framkvæmd og markmiðið
með verkefninu er í stórum dráttum þetta
:
- Að kynnast
jólasiðum í Danmörku, Finnlandi, Póllandi
og Þýskalandi.
- Að kynnast
framandi hráefni og matreiðslu.
- Að fá
nasasjón af jólatónlist frá öðrum
löndum.
- Að þjálfast
í samvinnu.
- Að læra
að kynna efni á netinu m.a. með því að
nota stafræna myndavél.
- Og síðast
en ekki síst:
Að halda jólaboð með gómsætum mat
og góðri skemmtun !
Efst
á síðu

Ferli
Undirbúningur
fyrir jólaboðið tekur tvær vikur fyrir jól
og frágangur á vefnum tvær vikur eftir áramót.
á meðan þið vinnið verkefni er upplagt að
skapa rétta andrúmsloftið með því
að smella á trén hér fyrir neðan :
Fyrsta
vika :
- Ykkur verður skipt
í fimm manna hópa sem hver er frá sínu landi.
| Áður
en starfið hefst er gott að rifja upp nokkur atriði
sem skipta máli í samvinnu: |
 |
- Þið skiptið
með ykkur verkum innan hópsins (eitt á mann),
Smellið á einhverja af myndunum til að finna álitlegar
bjargir :
- Hvert ykkar leitar
að sínu efni í upplýsingunum hér fyrir
neðan og annars staðar sem ykkur dettur í hug.
- Hópurinn
hittist og velur eitt atriði frá hverjum.
- Allir hóparnir
hittast og kynna sínar hugmyndir.
Ef tveir eða fleiri hafa valið sama efni, þarf að
finna lausn á því í sameiningu, til dæmis
með hjálp nemendanna frá þeim löndum
sem málið snýst um.
-
Allir æfa
jólalögin fjögur í tónmenntatímum
fram að boði.
Önnur
vika :
-
Allir fá
kynningu á stafrænni myndavél í upplýsingamennt.
- Þrír
úr hópnum útbúa dæmigert jólaskraut
og undirbúa kynningu á jólasið og jólamat.
Hinir tveir matreiða. Ef ekki næst samkomulag um verkskiptingu,
er gott að renna yfir þetta saman: .
-
Jólaboðið
hringt inn ! Allt er borið á borð í einu og
löndin síðan kynnt í stafrófsröð.
Hóparnir skipta stafrænu myndavélinni á
milli sín og myndir eru teknar í gríð og
erg fyrir vefinn.
Þriðja
og fjórða vika :
- Hver hópur
vinnur vefsíðu(r) með kynningu á sínu
landi
í Upplýsingamennt eftir áramót. Munum
að hlusta á alla í hópnum og leggja okkar
af mörkum. Sjá krækju í vefsíðugerð
og upplýsingamenntakennari
- Framhald
?
Hvernig væri að kynna verkefnið fyrir öllum skólanum
og stinga upp á framhaldi með öðrum löndum
?
Það gæti verið forvitnilegt að fá skoðun
krakka á ykkar aldri í í löndunum fjórum
á síðunum ykkar.
Upphafið að öllu þessu var heimþrá,
hvernig lýsir hún sér, hvenær verður
hennar helst vart og hvernig getum við brugðist við henni
?
Efst
á síðu
Mat
Hægt er að
skipta matinu í fjóra hluta :
1. Hvernig vannst þú í hópnum (einstakl.einkunn
(1-10))
2. Hvernig gekk
samvinnan í hópnum (hópeinkunn (1-10))
3. Framlag í
jólaboði (hópeinkunn: Lokið/ólokið)
4. Vefsíður
(hópeinkunn: lokið/ólokið)
Einkunn úr þessu verkefni er 25% af voreinkunn í
fögunum þremur.
|
Smelltu hér
til að sjá eftir hverju er farið við mat á
hópvinnu:
|
 |
Niðurstaða
Nú er jólaboðið
löngu liðið. En þar sem þið voruð dugleg
við að taka myndir og koma þeim á netið, getið
þið endurvakið stemminguna með heimsókn á
síðurnar ykkar. Sumt er flókið að festa á
mynd, en með ykkur sjálfum, finnið þið eflaust
að reynslan af samvinnu við aðra, það að hjálpast
að við að leysa verkefni og vandamál mun hjálpa
ykkur í næstu verkefnum. Gleymum aldrei að oftast hafa
allir eitthvað til síns máls og sá sem þarf
á okkar hjálpa að halda fyrir hádegi getur
sennilega stutt okkur í einhverju seinnipartinn.
Efst
á síðu

Upplýsingar
og heimildir
Byggt á efni
af vefsíðu Torfa Hjartarsonar, sem endar svona :
Torfi
Hjartarson byggði á sniði frá The
WebQuest Page og ýmsum gögnum
á þeim vef í júlí 2000. Erlenda fyrirmyndin var þá frá 15. ágúst 1999.
Einnig var litið til þýðingar Salvarar Gissurardóttur á eldra sniði
frá 1999.
|