| |
Á
þessu námskeiði opnuðust flóðgáttir.
Ég hef velt mér upp úr ýmsu og tíminn
ekki alltaf nýttur í samræmi við einingarnar
sem metið er eftir. Allt sem snýr að myndmálinu
hefur tekið óratíma, einna líkast því
að maður sé að læra nýtt tungumál.
Vinnan hefur ekki verið eins línuleg og krækjurnar
hér til vinstri gefa til kynna. Eftir því sem
tíminn (hinn harði húsbóndi) leyfir, ætla
ég að setja vangaveltur á bak við boltana
hér fyrir neðan, skoppa fram og aftur um verkefnin til
að ná mér í dáltila námsvitund
svona eftir á. Vonandi getur einhver gestur lært með
mér af þessum heilabrotum.
|