Hljóðfærakennslufærði I - Haust 2000
Blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík - Haust 2000.

Kennslufræði í blásarakennaradeild - 1. önn


Kennari: Dr. Þórir Þórisson. Heimasími 552 9004 (velkomið að hringja heim)
T-póstur: thoris@ismennt.is. Heimasíða: http://www.ismennt.is/not/thoris
Kennslustaður: Stekkur, stofa 13
Tími: Miðvikudagar kl. 08.30-10.30

Kennsluefni:

  1. Aðalnámskrá tónlistarskóla, almennur hluti (2000).
  2. Aðalnámskrá tónlistarskóla, greinanámskrár í blásturshljóðfærum (2000).
  3. Daniel L. Kohut (1985):
    Music Performance: Learning Theory and Pedagogy
  4. Stanley og Lois Schleuter (1988):
    Teaching and Learning Music Performance: What, When, and How.
  5. George Pratt o.fl. (1990):
    Aural Awareness - Playing from Memory
  6. James O. Froseth (1984):
    Comprehensive Music Instructor: Listen, Move, Sing and Play for Band
  7. Richard F. Grunow (1987):
    Jump Right In - The Instrumental Series

Markmið - Nemendur:

  1. Þekki þær kröfur sem gerðar eru til hljóðfærakennara í aðalnámskrá tónlistarskóla.
  2. Þekki viðurkennda aðferðafræði við að kenna leik eftir eyra/minni [Ve.I]
  3. Geti greint algeng vandamál í leik nemenda og lagt til skynsamlegar lausnir.
  4. Hafi yfirsýn yfir rannsóknir á meginsviðum hljóðfærakennslufræðinnar (leikninámi, æfingaaðferðum, minni, innri heyrn, nótnalestri, kennsluaðferðum og áhugahvöt).

Námsmat

  1. Kennsluefni í leik eftir eyra og minni og kennsla þess *            50%
  2. Bóklegt próf úr lestrarefni                                     50%

* Búa til íslenskt kennsluefni í leik eftir eyra eða minni við hæfi grunnstigsnemenda. Þið eigið að nota þá erlendu aðferðafræði sem kynnt hefur verið í tímum (Froseth/Grunow), en nota íslensk lög eða lög sem eru mjög þekkt hérlendis og henta til kennslu á ykkar hljóðfæri. M.ö.o. ykkar efni á að hafa íslenskan hreim en ekki amerískan. Koma með verkefnið í tíma og kenna það samnemendum (sem bregða sér í hlutverk II. stigs nemenda!).

Til baka á forsíðu