Hljóðfærakennslufræði II - Vor 2001
Tónlistarskólinn í Reykjavík
Kennari: Dr. Þórir Þórisson. Heimasími 552 9004. Kennslufræði í blásarakennaradeild - 2. önn, vor 2001
T-póstur: thoris@ismennt.is. Heimasíða: http://www.ismennt.is/not/thoris
Kennslustaður: Stekkur, stofa 13
Tími: Miðvikudagar kl. 08.30-10.30.
Aðalkennsluefni - Valdir kaflar úr:
- Richard J. Colwell & Thomas Goolsby (1992):
The Teaching of Instrumental Music
- Edward J. Kvet og Janet M. Tweed (1996):
Strategies for Teaching Beginning and Intermediate Band
- Charles R. Hoffer (1991):
Teaching Music in the Secondary Schools
- J. D. Boyle og R. E. Radocy (1987):
Measurement and Evaluation of Musical Experiences
- Þóri Þórisson (1993):
Námsmat (8. kafli úr drögum að aðalnámskrá tónlistarskóla)
- Davidson, Sloboda & Howe (1996):
The Role of Parents and Teachers in the Success and Failure of Instrumental Learners. (CRME #127)Ítarefni - Valdir staðir úr:
- Aðalnámskrá tónlistarskóla (2000), menntamálaráðuneytið
- Gary McPherson (1994):
Evaluating Improvisational Ability of High School Instrumentalists. (CRME#119)
- Educational Testing Service (1997):
National Assessment of Educational Progress (Geisladiskur - mat á flutningi)
Helstu markmið - Nemendur:
- Þekki meginhugmyndir um hvað hafi áhrif á áhugahvöt nemenda, einkum á áhugasveiflur unglingsárum. Hvað er líklegt til að efla áhuga? Hvað gæti dregið úr honum?
- Geri sér skýra grein fyrir sambandinu milli markmiða, kennslu og námsmats.
- Þekki helstu leiðir til að tengja saman námsmat og kennslu.
- Skrifi markmið, kennsluáætlun og kenni bekkjarfélögum 40-50 mínútna kennslustund í sköpun eða snarstefjun og meti námsárangur. (Tilvalið að byggja á efni úr Strategies for Teaching Beginning and Intermetiate Band).
- Þekki prófreglur hljóðfæraprófa og viðurkenndar aðferðir við prófdæmingu.
- Geti smíðað og nýtt sér ýmsar gerðir matskvarða við mat á nemendaflutningi og til að gefa nemendum skýra endurgjöf á styrkleika og veikleika í flutningi þeirra.
Námsmat I-II ár
- Kennslustund í sköpun eða snarstefjun ásamt markmiðsetningu og kennsluáætlun * 25%
- Prófdæmingarverkefni: Öflun hljóðritana, prófdæming þeirra og endurgjöf ** 35%
- Bóklegt próf úr lestrarefni 40%
Námsmat III ár
- Prófdæmingarverkefni: Öflun hljóðritana, prófdæming þeirra og endurgjöf ** 30%
- Rannsóknarverkefni *** 50%
- Bóklegt próf úr lestrarefni 20%
Nánar um verkefnin:
*Kennslustund í sköpun eða snarstefjun Verkefnið felst í að skrifa markmið og kennsluáætlun fyrir 40 mínútna langa hópkennslustund í sköpun eða snarstefnun á grunn- eða miðstigi og kenna hana samnemendum líkt og um lúðrasveitar- eða samspilsæfingu væri að ræða. Kennslustundin á að enda á námsmati, þ.e.a.s. stuttu verkefni sem er hliðstætt því sem kennt var og gefur til kynna að hve miklu leyti nemendur hafa náð meginmarkmiði kennslunnar. Þið skuluð velja ykkur eitt eftirtalinna verkefna úr Strategies for Teaching Beginning and Intermediate Band sem fyrirmynd að ykkar kennslustund: Bls. 13, 14, 16, 17, 20, 21-22 eða 26.
**Prófdæmingarverkefnið Gera þrjár mismunandi hljóðritanir meðal nemenda í grunn- eða miðnámi, af sama lagi eða æfingu á verkefnalista grunn- eða miðnáms.* Hver upptaka á að endurspegla misgóð tök á markmiðum í grunn- eða miðnámi samkvæmt viðkomandi greina-námskrá. Koma með hljóðritanirnar í tíma og láta samnemendur prófdæma og skrifa umsögn um hvern flutning eins og þeir væru að dæma stigs-/áfangapróf. Í verkefninu felst einnig að smíða matskvarða og umsagnarform sem samnenendur dæma eftir og að ganga úr skugga um áreiðanleika þeirra sem dómara. * Þeir sem ekki hafa aðgang að nemendum geri hliðstætt verkefni á aukahljóðfæri sitt.
***Rannsóknarverkefni þriðja árs nema Sjálfstæð rannsókn á ákveðnu vandamáli sem blásara-kennarar glíma við í starfi. Einnig gæti komið til greina rannsókn á tónlistarnámi eða kennslu í víðara samhengi. Dæmi 1: Hvaða ástæður gefa táningar fyrir því að þeir kjósa að hætta í námi/lúðrasveit? Með sjálfstæðri rannsókn á ég við að þið aflið sjálf gagna með því að búa til spurninga-lista, leggja hann fyrir og/eða taka viðtöl við nemendur/foreldra/blásarakennara. Er mikill munur á skýringum þessara þriggja hópa á því að unglingar hætta í tónlist? Setja niðurstöður fram á skilmerkilegan hátt. Dæmi 2: Hvað finnst fyrrverandi nemendum blásarakennaradeildar hafa nýst þeim vel í starfi af því sem þeir lærðu í deildinni? Hvað finnst þeim hafa vantað eða hefði átt að gera betri skil?