Berglind Jóna Jensdóttir og Sólveig Þorbjarnardóttir
Skilar iðni árangri? Mismunandi orsakaskýringar og hugsanlegt mikilvægi þeirra fyrir tónlistarnám B.A. ritgerð í sálarfræði Nr. 1340, maí 1998.
Leiðbeinendur:
Sigurður J. Grétarsson
Þórir Þórisson
Athugað var hvort munur væri á orsakaskýringum píanónemenda og fyrrverandi píanónemenda þegar þeir mátu góðan og slakan árangur sinn í spilatíma. Allir þátttakendurnir mátu hversu mikil áhrif áhugi, iðni, æfingatækni, hæfileikar, þyngd verkefnis, heppni, áhrif foreldra og kennara hefðu á frammistöðuna. Helstu niðurstöður voru að píanónemar skýrðu góðan árangur sinn frekar út frá iðjusemi, áhuga, réttri æfingatækni og hæfileikum en þeir sem voru hættir píanónámi. Þátttakendur sem stunduðu píanónám töldu síður að hæfileikaskortur ætti þátt í að þeim gekk illa í spilatíma en þeir sem ekki voru enn í námi. Píanónmendur töldu slaka frammistöðu sína fremur koma til vegna þyngdar þess sem þeir voru að spila en fyrrverandi nemendur. Almennt voru þátttakendur tilbúnari til að eigna kennara hlut í velgengni sinni en að kenna honum um mistök sín.
31/05/01