ÞÓRIR ÞÓRISSONNÁMSEFNI
LÆRÐU AÐ HLUSTA
Lærðu að hlusta er námsefni í hlustun og greiningu fyrir tónlistarskóla. Efnið skiptist í þrjú hefti. Í því fyrsta læra nemendur að heyra og skilja frum- og túlkunarþætti tónlistar. Annað heftið segir sögu vestrænnar tónlistar frá endurreisn til 20. aldar í stuttu máli og tekin eru dæmigerð tónverk frá hverju tímabili til greiningar. Í þriðja heftinu er leitast við að gera djass, popp og heimstónlist nokkur skil. Áherslan er á stíllæsi og virkt nám. Í námsefninu er hverju atriði fylgt eftir með æfingum, hlustunarverkefnum, lestrarspurningum og smáhópaverkefnum. Heftin eru prentuð hjá Offsetfjölritun HF og fást í Tónastöðinni. Smelltu hér að neðan til að fá efnisyfirlit hvers heftis fyrir sig.
Tónlist lærð með hlustun. Höfundur, 1994.Kennslubók og hlustunarefni ætlað almennum framhaldsskólanemum. (styrkt af Menntamálaráðuneytinu, námsefnisnefnd framhaldsskólastigsins, 1992).
31/08/00