Tónmennt fyrir eldri nemendur
Tónmenntakennaradeild
Tónlistarskólans í Reykjavík

Tónmennt fyrir eldri nemendur


Námskeiðslýsing - Vormisseri 2001


Kennari: Dr. Þórir Þórisson. Sími 552 9004.
Netfang: thoris@ismennt.is. Heimasíða: http://www.ismennt.is/not/thoris.
Kennslustaður: stofa 13 / bókasafn.
Tími: Miðvikudagar kl. 08.30-10.30.

Aðalkennslubækur
Charles R. Hoffer (1991): Teaching Music in the Secondary Schools,  4. útg.
June M. Hinckley & Suzanne M. Shull: Strategies for Teaching Middle-Level General Music
Þórir Þórisson: Lærðu að hlusta III (2000).

Ítarefni frátekið á bókasafni

  1. Þórir Þórisson: Lestrarspurningar og þýddir útdrættir úr Charles R. Hoffer (1991)
  2. Keith Thompson & Gloria Kiester: Strategies for Teaching High School General Music
  3. Kennsluefni, myndbönd, hlustunar- og margmiðlunarefni til kynningar og umfjöllunar. Efnið verður afhent eða sett í námskeiðsmöppu á bókasafni einni viku fyrir kynningu.

Helstu markmið - Nemendur geti:
  1. Útfært tiltekið námsmarkmið með því að búa til kennsluefni og kenna það
    bekkjarfélögum. Nánar tiltekið að skipuleggja 30 mínútna kennslustund
    er kenni/þjálfi afmarkað viðfangsefni og meti námsárangur. Tilvalið að
    flétta saman efni úr Lærðu að hlusta og viðfangsefnum í “Strategies for
    Teaching ..." bókunum, ásamt því kennsluefni sem þið leggið mat á. [i]
  2. Lagt mat á fáanlegt kennsluefni í ýmiskonar formi (bækur, myndbönd, margmiðlun o.s.frv.). [ii]
  3. Nýtt sér algengustu tæki og tól tónmenntakennarans til að búa til
    kennslugögn (upptökutæki, myndbandstæki, glærur, nótnaskriftarforrit) [i]
  4. Gert grein fyrir hvernig nýta má þekkingu á sálarfræði unglingsáranna til að
    gera kennslu þessa aldurshóps árangursríkari. [iii]
Námsmat:
  1. Eigið kennsluefni nemenda, kennsla þess og skipulag               25%
  2. Kynningar og gagnrýnið mat á útgefnu kennsluefni.
    Sjá sérlista. Efni afhent viku fyrir kynningu.                       25%
  3. Bóklegt lokapróf                                                50%
- Kennsluáætlun sjá bakhlið -
Til baka á forsíðu