Heimasíða:

ATHUGAÐU ÞESSA KRÆKJU !

 
 


 Velkomin(n)

Efni og tengingar á heimasíðunni minni:

Áfram, áfram, áfram íslenska - efni með bók um íslensku fyrir landnema. :-)

Kennsluvefurinn - vefsetur fyrir nemendur mína, kennsluáætlanir, glósur og fleira.

Leitarvefir - margt fróðlegt og spennandi er að finna þar, um að gera að leita.

Fjölmenningarkrækjur - kennsluefni um ýmislegt varðandi íslenskt tungumál.

Kennaraháskóli Íslands - skóli sem ég stundaði nám í.

Um bókasöfn - margvíslegar tengingar og fróðlegar.

Forn Íslandskort - kortasýning hjá Landsbókasafninu.

Gervitunglamyndir - glænýjar myndir utan úr geimnum.

Um upplýsingabyltingu - ritsmíð eftir mig á Netinu.

Bókmenntir og íslenskt tungumál - vefsíður um íslenskukennslu og fleira.

Persónulegar upplýsingar - upplýsingar um mig og fyrri störf.

Verkefni nemenda minna - um Sjálfstætt fólk, Fjölni, Njálu og margt annað.

Mjög margt fleira er að finna hér á þessari og

öðrum síðum sem ég hef gert.

Hér eru áhugaverðar síður fyrir flakkara á vefnum: 

 Menntamál

 

Íslenska menntanetið

Lög um framhaldsskóla

Námsefni á vef  

Þarna finnur þú glærusöfn og hugmyndir að kennsluefni í mörgum námsgreinum hjá Námsgagnastofnun.

Útgáfuskrá menntamálaráðuneytisins

Útgefið efni menntamálaráðuneytisins. Tillögur ráðuneytisins um menntun, menningu og upplýsingatækni, auk þess margt fleira. Þarna er margt merkilegt að finna og hægt er að leita að tilteknu efni. Til dæmis má finna þarna Aðalnámskrá framhaldsskóla.

Íslenska upplýsingasamfélagið

Menntagátt

                Þarna er verið að safna saman efni sem tengist námskrám í 

                    framhaldsskólum á Netinu á vegum menntamálaráðuneytisins. Þetta er 

                    gagnleg síða fyrir alla í framhaldsskólum.

 

 KÍ. Kennarasamband Íslands

Þarna má finna ýmislegt gagnlegt um kjarabaráttu og margt fleira er varðar réttindi kennara.

 

Skólar

Háskóli Íslands

 Kennaraháskóli Íslands

Bókasöfn

 Forn Íslandskort. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn

Þetta er kortasaga Íslands í stafrænu formi á netinu.

Netsíðusafn

Þarna er hægt að skoða vefsíður aftur í tímann, hvernig og hvort þær hafi verið til og hvenær, ef þú veist hver slóðin er!

Borgarbókasafn Reykjavíkur  

Vefsíðuvakt íslenskra bókasafna

Þetta eru nýjar síður, efnisflokkaðar og mjög athyglisverðar. Þarna er hægt að sjá Vefbókasafnið, íslenskar heimasíður um margvíslegt efni.

Grein eftir Lindu Erlendsdóttur á Netinu um bókasöfn og nýja tækni

Þetta er athyglisverð grein um bókasafnsfræðinga og hvernig ný tækni upplýsingarbyltingarinnar hefur haft áhrif á þeirra starf (á ensku).

Landsbókasafn - Háskólabókasafn. Gegnir

Þetta er síða sem veitir þér aðgang að bókaskrá Landsbókasafnsins - Háskólabókasafnsins og líka Bókasafni Kennaraháskólans, en þessi skrá heitir Gegnir, sem hefur skrá yfir bækurnar, en svo er önnur tölvuskrá (eða gagnagrunnur) sem heitir Greinir og geymir skrá yfir tímarit.

AskERIC

Norræna húsið

Hér er að finna bókasafnsskrá bókasafnsins (Micromarc) og líka ýmsa dagskrá í Norræna húsinu. Einnig er að finna upplýsingar um kaffiteríuna, ef þú vilt fá þér kaffi þar og með því og margt fleira.

LIBRIS

Þetta er bókasafnsskrá á Veraldarvefnum (sænsk). Skrá yfir norrænar bókmenntir og fleira áhugavert með yfir 5 milljónir titla innanborðs.

 Læknisfræðilegt bókasafn í Bandaríkjunum

Þetta er gagnsafn í Bandaríkjunum um heilbrigðismál og er alveg ókeypis! (U.S. National Library of Medicine (NLM)).

Íslenskar bókmenntir á Netinu og íslenskunám

Norræn goðafræði   

Þarna er efni úr bók eftir Sölva Sveinsson og Kristinn Kristjánsson, sem heitir Guðirnir okkar gömlu. Norræn goðafræði og frásagnir úr fornum ritum

Auglýsing um íslenska stafsetningu

Þetta vefsetur hefur að geyma stafsetningareglur í íslensku tungumáli og opinbera stefnu varðandi þau fræði. Og einnig má sjá vefsetur sem heitir: Auglýsing um greinarmerkjasetningu.

Vefsíður um íslenskukennslu

Álfar og tröll

Hér er heimasíða um þjóðsögur og annað skemmtilegt.

Um eddukvæði - Forn fræði

Þarna er margt um þessar dýrmætu bókmenntir Íslendinga. Hér finnur þú upplýsingar um Atlakviðu, Völuspá og mörg önnur eddukvæði.

Völuspá  

Þetta er Völuspá á Netinu, sem hægt er að lesa í nokkrum útgáfum.

Um Völuspá og margt fleira  

Þetta er efni sem Guðlaug Gísladóttir hefur sett á Netið. Þú finnur upplýsingar um Snorra-Eddu, Völuspá og fróðleik um ýmislegt sem er tengt því.

Völuspá á margmiðlunarformi

Eddukvæði á margmiðlunarformi

Það er hægt að nálgast þarna eddukvæði með nútíma stafsetningu, eins og til dæmis Þrymskviðu.

Ásatrú og persónur úr Völuspá

            Völuspá og goðin.  Þessi síða er geymd á vefsetri Fjölbrautaskóla Suðurlands. 

 

Miðaldafræði. Kennarar, fræðimenn og fleira í Háskóla Íslands

Hér er mjög áhugaverður listi yfir fræðimenn á sviði fornbókmennta og um nám í miðaldafræðum við Háskóla Íslands. Þarna er meðal annarra fræðimanna í miðaldafræðum við Háskóla Íslands að finna upplýsingar um Hönnu Steinunni Þorleifsdóttur fræðimann með sérsviðið: Miðaldaþýðingar úr fornfrönsku, riddarasögur.

Snorri Sturluson og fleira - Forn fræði

Laxdæla - Forn fræði

Brennu-Njáls saga - Forn fræði

Um Njáls sögu

Þetta efni er mjög gagnlegt í íslenskukennslu og bókmenntafræði, á þessum síðum er vísað til fleiri slóða. Þetta eru síður sem Harpa Hreinsdóttir hefur umsjón með, en ég mæli með síðunum um Egils sögu, sem hægt er að krækja í hér fyrir neðan.

Um Egils sögu

Um Brennu-Njáls sögu

Um Njálu

Kennarasíða í Njálu

Íslendingasögurnar á ensku  

Á vef Bókaútgáfunnar Leifur Eiríksson er sagt frá útgáfu á Íslendingasögunum á ensku og bækurnar boðnar til kaups. Vefurinn er á íslensku og ensku og eru birtar umsagnir um sögurnar, útgáfusagan rakin og sagt frá Vínlandsferðum, Íslendingasögum og Íslandi.

Vesturfararnir  

Á árunum 1870 til 1914 fluttust þúsundir Íslendinga búferlum til Vesturheims, stærsti hlutinn til Kanada. Á þessum vef er stiklað á stóru í sögu vesturferðanna, dregnar fram persónulegar heimildir og skáldskapur sem varða ólíkar hliðar þeirrar sögu og varpað ljósi á aðstæður vesturfaranna og afkomenda þeirra í Kanada og Bandaríkjunum. Þessar síður eru bæði á íslensku og ensku.

Leifur Eiríksson og íslenskt víkingaskip í Ameríku  

Þessar síður fjalla um för íslenska víkingaskipsins sem sigldi í kjölfar Leifs heppna á árinu 2000 þegar um það bil 1000 ár voru liðin frá för hans og fleiri Íslendinga til Ameríku. Þarna getur þú líka sent tölvupóstkort á Netinu til vina og annarra, sem þú vilt laða til landsins (Íslands) í heimsókn, með aðlaðandi mynd frá Bláa lóninu eða öðru alveg hreint frábæru sem hægt er að sjá á Íslandi og upplifa.

Um Sjálfstætt fólk

Þetta er verkefni sem nemendur mínir við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum unnu á haustönn 1999. Þetta er fréttabréf um bókina eftir Halldór Laxness.

Um Halldór Laxness

Þetta eru vel gerðar síður á fréttavef Morgunblaðsins um Halldór, verk hans, ævi og Nóbelsverðlaunin, auk þess eru þar greinar um höfundarverk Halldórs Laxness eftir bókmenntafræðinga.

Meira um Halldór Laxness og Nóbelsverðlaunin

Þetta eru síður sem Ríkisútvarpið lét gera og opnaði á Degi bókarinnar 23. apríl, sumardaginn fyrsta og afmælisdag Halldórs Laxness 1998. Þetta eru síður með athyglisverðum myndum og margmiðlun.

Um bókmenntir, eins og til dæmis Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og fornsögur Íslendinga

Þetta eru síður sem eru mjög vel unnar og fróðlegar. Þarna er meðal annars vísað á slóðir út í netheiminum um viðbrögð fólks við að lesa bók Halldórs og margt annað. Harpa Hreinsdóttir er höfundur þessarar síðu, en hún hefur safnað miklu efni á Netinu með hjálp nemenda sinna undanfarin ár. Upplýsingar um ferðir Íslendinga vestur til Vínlands, Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu er einnig að finna á þessum síðum og margt annað.

Íslandsklukkan

Vefur með kennsluefni eftir Hörpu Hreinsdóttur og verkefnum nemenda hennar í ÍSL 203, við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.

Vísnasafnið

Hér er að finna margar vísur, þar á meðal: Að lífið sé skjálfandi, Á Sprengisandi, Det var brændevin i flasken, Ég veit þú kemur, Fimmtíu senta glasið, Fyrir sunnan fríkirkjuna, Hin gömlu kynni, Híf-opp, Hvað er svo glatt, Í bláum skugga, Ísland ögrum skorið, Játning, Kátir voru karlar, Komdu og skoðaðu, Kötukvæði, Litla flugan, Ljúfa Anna, Mér er sama hvar ég lendi er ég dey, Mikið lifandi skelfing, Maístjarnan, My Bonnie is over the ocean, Nú liggur vel á mér, Ó blessuð vertu sumarsól, Ó Jósep Jósep, Pálína og saumamaskínan, Ræfilskvæði, Segðu ekki nei, Sjómaður dáðadrengur, Ship-o-hoj, Sumarnótt, Undir dalanna sól, Úr fimmtíu senta glasinu..., Úti við svalan sæinn, Vor við sæinn, Það gefur á bátinn við Grænland, Það liggur svo makalaust..., Þórður sjómaður, Þórsmerkurljóð.

Skaftáreldar 1783

Þetta eru síður um Móðuharðindi og góð umfjöllun um bókmenntir, eins og verk séra Jóns Steingrímssonar eldklerks, en þessar síður eru gerðar af nemendum í Menntaskólanum við Sund.

Guðmundur Hálfdánarson. Staða rannsókna á sviði 18. aldar fræða: Sagnfræði

Þarna er grein eftir Guðmund Hálfdánarson og birt á vef Þjóðarbókhlöðunnar.

Um Jónas Hallgrímsson

Þetta er verkefni sem nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum unnu núna á haustönn 1999 um Jónas Hallgrímsson og fjölnismenn.

Jónas Hallgrímsson. Ljóðasafn og prósasafn

Þetta er mjög góð síða unnin í Kanada og er með allan texta sem Jónas skrifaði á bæði ensku og íslensku. Þarna er möguleiki á því að heyra upplestur á ljóðunum, fá mjög góðar bókmenntafræðilegar upplýsingar um Jónas og margt annað.

Fjölnir

Þarna er hægt að finna verkefni um tímaritið Fjölni, sem nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum unnu á vorönn 1999.

Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember

Þetta eru síður hjá menntamálaráðuneytinu um dag íslenskrar tungu, sem er á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.

Fjölnir

Þarna er hægt að finna annað verkefni um tímaritið Fjölni, sem nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum unnu á vorönn 1999.

Vefur um barna- og unglingabókmenntir

Hér er hægt að finna margt skemmtilegt eins og kennsluhugmyndir fyrir kennara sem kenna þetta námefni: Benjamín dúfu, Jón Odd og Jón Bjarna, Skilaboðaskjóðuna eða aðrar barna- og unglingabókmenntir, þarna eru verkefni og hugmyndir kennaranema við Kennaraháskóla Íslands um það hvernig hægt væri að kenna þetta námsefni.

Jón Sigurðsson

Þetta eru mjög vel gerðar síður um Jón Sigurðsson. Foringinn í frelsisbaráttu Íslendinga fyrir sjálfstæði.

Netútgáfan

Þetta er mjög athyglisverð síða með ýmsum útgáfum á öndvegis verkum, eins og Íslendingasögum, til dæmis Njálu og Laxdælu, en þarna eru þjóðsögur, smásögur og Biblían svo fátt eitt sé nefnt; allt á íslensku!

Biblían á íslensku

Upp við fossa

Þetta er skáldsaga frá byrjun 20. aldar eftir Þorgils gjallanda, en hann hét réttu nafni Jón Stefánsson. Þessi saga er gefin út af Netútgáfunni og er mjög skemmtileg saga, lesin í mörgum framhaldsskólum á Íslandi og þarna getur þú lesið textann af skjánum í tölvunni þinni eða unnið með þennan texta í ritgerð sem þú ert að skrifa um söguna.

Um Snorra-Eddu

                Þetta eru fróðlegar síður eftir Braga Halldórsson.

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar

Þetta eru síður um Hallgrím sem Ríkisútvarpið hefur látið gera.

Galdrar

Heimasíða Matthíasar Viðars Sæmundssonar um galdra, bókmenntir og margt annað.

Leshús

Þorgeir Þorgeirson rithöfundur og þýðandi hefur opnað síðu, þar sem hann birtir skrif sín og fjallar um forlagið sitt sem hann kallar Leshús. Eins og allir vita er Þorgeir þekktur fyrir baráttu sína fyrir ritfrelsi.

Íslenskt nútímamál og íslensk orðhlutafræði

Þetta eru málfræðisíður eftir Eirík Rögnvaldsson.

Íslenska 202

Þetta eru gagnlegar síður sem kennarar við Fjörlbrautskóla Suðurlands hafa gert. Þarna er að finna gagnvirk verkefni og margt annað. Á þessum vef er að finna ýmsar upplýsingar sem eiga að koma nemendum þessa áfanga að góðu gagni. Gísli Skúlason er ábyrgðarmaður. 

Íslensk orðabók  

Þessi vefslóð býður upp á uppflettingu í íslensku orðasafni, sem sýnir hvernig hægt er að nota Íslensku orðabókina í tölvu. Það er um að gera að prófa og fræðast með því nota þennan möguleika sem mest, enda mjög þægilegt að geta gert þetta ókeypis, en síðan er auðvitað hægt að kaupa íslenska orðabók í tölvuna sína á geisladiski í heilu lagi, nota hana þegar skrifuð er ritgerð eða eitthvað annað og það er auðvitað mjög gagnlegt í öllu námi og vinnu á Íslandi.

Móðurmálsverkefni - handbók fyrir kennara  

Þetta er vefsetur sem Hafsteinn Karlsson hefur umsjón með, um það hvernig nota má bókmenntir, lestur og ritun við íslenskukennslu.

Ylur

Íslenskar bókmenntir á Netinu verða sífellt algengari sjón og þú getur lesið og kynnst skáldskap rithöfunda á borð við Þórarinn Torfason, sem stendur fyrir útgáfu á sínum verkum fyrir alla undir útgáfuheitinu Ylur og vonandi að öll heimsbyggðin fari nú að lesa íslenskuna okkar.

ORÐABANKI íslenskrar málstöðvar

Íslensk orðabók á netinu.

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi

Stofnun Sigurðar Nordals

Fræðimannaskrá Stofnunar Sigurðar Nordals

Gagnagrunnur um fræðimenn sem stunda íslensk fræði um heim allan.

Kistan. Vefrit um hugvísindi

Þarna er hafsjór af upplýsingum og greinum sem skrifaðar hafa verið í Háskóla Íslands, í ýmis tímarit eins og Skírni. Þarna finnur þú greinar um bókmenntafræði, margvíslegar greinar um leiklist og heimspeki.

Hjálmar Jónsson frá Bólu

Þarna má sjá fallegar síður um skáldið og hagleiksmanninn Bólu-Hjálmar.

Gunnar Gunnarsson skáld og rithöfundur

Jóhannes úr Kötlum skáld

Vefnir

Tímarit Félags um átjándu aldar fræði. Vefnir er fyrsta fræðilega rafritið (rafræna tímaritið) á Íslandi. Í Vefni birtast greinar sem unnar eru upp úr fyrirlestrum á vegum félagsins að ósk ritstjórnar, en einnig er þar að finna ýmislegt annað efni sem snertir menningu síðari alda.

Bragfræði

Þessum vef er ætlað að lýsa þeim bragfræðireglum sem stuðst er við svo að einhverjir geti haft gagn og gaman af. Þegar vefurinn verður fullgerður er ætlunin að hann innihaldi einnig gagnvirk próf, og fullgert háttatal. Þarna er ljóðasafn og margt fróðlegt að finna. Þetta er vefur sem Hallur Reynisson hefur umsjón með.

Njála á enskri tungu í ókeypis vefútgáfu á Netinu 

Bragfræði  

Þetta er annað vefsetur með útskýringum á bragfræðireglum og mörgu öðru fróðlegu eins og bragfræðiorðaskrá sem Jón Ingvar Jónsson hefur umsjón með. Þessar síður eiga að veita þá innsýn í bragfræði, sem nauðsynleg er, til að yrkja háttbundnar vísur og þjálfa með sér næmt brageyra.

Vefsetur Sverris Páls  

Þarna er margt mjög gagnlegt að finna, eins og glærur og kennsluefni. Sverrir Páll umsjónarmaður síðunnar er kennari við Menntaskólann á Akureyri.

Rithöfundavefurinn

Nýjar kennslubækur fyrir nemendur og kennara í íslensku

Þetta eru nýjar vefsíður um nýjar bækur hjá Iðnú. Þarna er til dæmis hægt að lesa og gera stafsetningarverkefni úr bókinni Ljúfa leiðin eftir Baldur Sigurðsson og Guðmund Sæmundsson. Kennslubækur í íslensku fyrir framhaldsskóla samkvæmt nýrri námskrá á pappír og vef.

Setningafræði

              Þarna er margt áhugavert að finna fyrir þá sem vilja fræðast um íslenska setningafræði. Þarna eru til dæmi margar málfræðiæfingar.

Góðir fjölmenningarvefir í grunnskólum, Austurbæjarskóli og Breiðholtsskóli í Reykjavík og Grunnskólinn í Þorlákshöfn   

Tala saman á íslensku

                    Hvernig á að tala saman og segja ýmislegt á íslenskri tungu?

Réttritun á íslensku  

                    Hvernig á að skrifa ýmislegt á íslenskri tungu?

Fjölmenning

         Þarna er ýmislegt að finna um starfstengt nám fyrir 

            innflytjendur á atvinnumarkaði Íslands.

 

Mörg tungumál

 

 

 

                   Þarna má finna ýmis orðasambönd, kveðjur, þakkir, skilning 

                    og fleira á um 465 tungumálum sem töluð eru í dag í 

                    veröldinni.

Alfræðisafn á mörgum tungumálum, Wikialfræðisafnið = Wikipedia 

         Þarna er ýmislegt að finna ýmislegt, sem má nota og finna á mörgum tungumálum, um það bil 150 tungumál.

Sagnavefur 

         Þarna er málfræði um íslensk sagnorð og beygingu þeirra.

 

Áfram, áfram, áfram íslenska

                    Kennsluefni fyrir nýbúa, innflytjendur eða landnema, sem  

                    vilja læra íslensku sem annað mál eða erlent mál.

Orðasafn yfir orðasambönd á um 17 tungumálum !  

            Þetta eru mjög athyglisverðar síður frá Þýskalandi, Háskólanum í Leipzig.

 

BRAGI - íslenska sem erlent tungumál

Málfræði fyrir  nýbúa er að finna þarna á þessum síðum á mörgum tungumálum. Hér má einnig finna íslenskuverkefni fyrir innflytjendur og fleiri sem vilja læra íslensku sem annað tungumál. 

 

Íslenskuskólinn  

   Þetta er skóli á Netinu, þar eru margir nemar, íslensk og erlend börn búsett erlendis sem vilja læra íslensku og nota til þess upplýsingatæknina, þótt þau séu stödd langt í burtu langtímum saman. Þarna er skemmtilegt efni, eins og skólablað og fleira, en hægt er að komast inn á þessar síður með því að nota aðgangsorðið og leyniorðið: gestur

 

Orðasöfn með myndum og hljóði á mörgum tungumálum fyrir nema sem læra íslenskt viðbótartungumál 

Þetta eru margar síður með mörgum orðum á mjög mörgum tungumálum, sérstaklega fyrir börn.

 

Þýðing og margt annað

Þarna er hægt að finna ýmislegt gagnlegt fyrir tungumálanám á mörgum tungumálum, hægt að þýða texta vélrænt milli tungumála (með því að ýta hlekkinn North European Dictionaries), sækja tónlist (mp3) og margt annað.

 

Náttúrufræði 

 Gervitunglamyndir

Hér getur þú séð nýjustu veðurtunglamyndir í eða á Internetinu án endurgjalds. Þetta efni er mjög gagnlegt í náttúrufræðikennslu og veðurfræði, og mætti nota fyrir nemendur sem vilja kynnast möguleikum Netsins í tölvukennslu. Athugaðu að þú verður að fylla út umsókn til að fá aðgang, og velja þér aðgangsorð og leyniorð í umsókninni. Þeir sem setja upp þessa síðu vilja vita hverjir skoða síðuna, og til hvers.

Veðurstofa Íslands

Veðurþjónusta. Nýjasta veðurspá, veðurtunglamyndir, gervitunglamyndir og margt annað fróðlegt.

Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir  

Knattkol. Lokaverkefni í Jar 252 í Menntaskólanum við Hamrahlíð

Þetta er verkefni sem birt er á athyglisverðum fjarnámsvef um náttúrufræði sem George Douglas kennari hefur umsjón með.

Eldgos

Vestmannaeyjagosið 1973

Þarna eru vel gerðar síður um gosið í Eyjum og þær náttúruhamfarir, með myndum og góðri umfjöllun.

Jarðvísindi og plánetufræði

Jarðfræðilegar hamfarir

Þetta eru síður sem nemendur í Menntaskólanum við Sund hafa unnið og þarna er að finna upplýsingar um skriðuföll, jarðskjálfta og eldgos.

Jökulhlaup

Hér er hægt að skoða myndir af Skeiðarár hlaupi og finna slóðir sem fjalla um þá sögulegu atburði sem urðu í Vatnajökli 1996.

Orkustofnun, (National Energy Authority of Iceland)

Vefsíður um náttúruvernd

Upplýsingakerfi Raunvísindastofnunnar Háskóla Íslands

Þarna er hægt að finna ýmislegt fróðlegt, meðal annars um tölvuvandamál, eins 2000 vandann og um tölvuveirur, en einnig ýmislegt um eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði og stærðfræði. Athyglisverð síða fyrir tölvuflakkara.

Ýmislegt

Lagasafn Íslands

Í stafrófsröð.

Alþjóðahúsið

Umboðsmaður barna á Íslandi

Nýjar síður, þar sem börn (til 18 ára aldurs) geta skrifað til Umboðsmanns barna tölvupóst og skoðað ýmislegt fróðlegt á netinu.

Vísindavefurinn

Á Vísindavefnum er hægt að nálgast margar upplýsingar, tengingar, fræðast og leita að ýmsu í stórum gagnagrunnum á Netinu.

ASÍ vefurinn

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands

Bóksala stúdenta

Rauði kross Íslands

 Mjög góð orðabók á Netinu

   Reykjavíkur akademían  

Þarna má finna efni um hugvísindi og ýmsar tengingar.

   Tölvun

Hér er hægt að ná í ýmis forrit og leita að ýmsu áhugaverðu um Vestmannaeyjar.

   Mál og menning

   Hið íslenska bókmenntafélag

   Komið og dansið

                    Það má dansa og skemmta sér á þessari síðu og             

                        fræðast um margt,  til dæmis hvernig hægt er að 

                        læra að dansa!

Netfangaskrár, leitarvefir og fleira 

Leit.is

Google Ísland

Hvar.is

Símaskrá. Velkomin í uppflettingu símaskrár

Leitarvefir: 13 bestu leitarvefirnir

Ameríska menntanetið. Leitarvél

Síðusafnið

Vefbókasafnið

 

Þakka þér kærlega fyrir að sýna þessari síðu áhuga þinn og heimsækja hana!

Það er svo gaman að fá tölvupóst.

Viltu skrifa mér og láta mig vita hvernig þér finnst

 heimasíðan mín?

Upp á topp aftur!

Lagfært 12. mars 2008.

©1997 Gunnar Þorri, allur réttur áskilinn.

Allar greinar, efni og skrif sem vitnað er til er eign viðkomandi höfunda/útgefenda og skal farið með samkvæmt höfundaréttarlögum eða þeim skilmálum sem um greinarnar eru settar.