Hér er að
finna upplýsingar um það sem ég hef verið að fást við
undanfarna tvo áratugi eða nánar tiltekið síðan ég tók þá ákvörðun
á miðjum aldri að fara í
frekara nám sem fljótlega leiddi til þess að ég venti mínu kvæði í kross
og gerðist framhaldsskólakennari og fór að kenna tölvutengdar greinar.
Þegar ég var búin að kenna í nokkur ár þá langaði mig að læra meira og
eftir að hafa þreifað fyrir mér í
Háskóla Íslands og Tölvuháskólanum
(forvera
Háskólans í Reykjavík) fór
ég í
framhaldsnám í tölvu- og upplýsingatækni við
Kennaraháskóla
Íslands og lauk
þaðan meistaraprófi í uppeldis- og menntunarfræðum
með áherslu á tölvu- og upplýsingatækni haustið 2003.
Meginviðfangsefni mitt og
jafnframt brennandi áhugamál er náms-
og kennsluaðferðin lausnaleitarnám [Problem-Based Learning] sem
hefur skipað veglegan sess í nánast öllu sem ég hef tekið
mér fyrir hendur síðan ég kynntist því fyrst um aldamótin. Samhliða
vinnu og námi hef ég reynt eftir bestu getu að vekja nánari athygli á þessari kennsluaðferð innan skólasamfélagsins m.a.
með því að setja upp upplýsingasetrið FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR á vefslóðinni
www.pbl.is.
Það sem drífur mig áfram er sú sannfæring að nauðsynlegt sé að
breyta kennsluháttum markvisst á öllum skólstigum til að búa
nemendur undir það sem bíður þeirra hvort sem er í áframhaldandi
námi og/eða starfi. Kennslan þarf að vera nemendamiðuð í
stað þess að vera kennaramiðuð eins og hún er nú í flestum
tilfellum og kennsluhættir þurfa að vera með þeim hætti að í
námi sínu öðlist nemendur markvissa þjálfun í sjálfstæðum
vinnubrögðum sem snúa að samskiptahæfni, tölvukunnáttu og
sérhæfðri tækniþekkingu ásamt kunnáttu í að afla sér upplýsinga eftir þörfum sem stuðla að áframhaldandi
þekkingarleit og færni. Allt miðar þetta að því að undirbúa nemendur sem
best undir nám og störf í síbreytilegu samfélagi þar sem gildi
símenntunar eykst stöðugt.
Til að vinna
aðferðinni brautargengi er ég þessa stundina að vinna að viðamikilli rannsókn á
framvindu lausnaleitarnáms hér á landi sem ég hófst handa með
fyrir nokkrum árum. Áætlað er að rannsóknin fari fram á öllum
skólastigum þannig að hún gefi sem gleggsta mynd af reynslu
þeirra kennara og nemenda sem þegar eru farnir að nota
aðferðina. Auk þess er fyrirhugað að fylgja
nemendum eftir út á vinnumarkaðinn og/eða í framhaldsnám og skoða hvort
þeir telji að sú aðferðafræði sem beitt er í lausnaleitarnámi hafi komið
þeim til góða í áframhaldandi námi og starfi. Rannsóknin er nú unnin í
samvinnu við
Kennslufræði- og lýðheilsudeild
Háskólans í Reykjavík.